Glamour

Förðunin fyrir helgina

Ritstjórn skrifar
Giambattista Valli
Giambattista Valli Glamour/Getty
Þá er helgin komin eftir fallega viku, og erum við að skipuleggja meira en bara dress helgarinnar, og má förðunin ekki verða útundan. Hér eru helstu förðunartrendin frá tískupallinum í París, og beint til þín.

Fyrir öll tilefni.

Sonia Rykiel, Dior
Svartur augnblýantur

Mikill, þykkur og svartur augnblýantur voru aðalatriðin hjá Sonia og Rykiel og Christian Dior. Hafðu aðra förðun í lágmarki. 

Valentino, Givenchy
Mikill maskari

Valentino og Givenchy lögðu mikla áherslu á svartan maskara og ekki mikið annað. Mjög flott fyrir helgina. 

Akris
Gullflögur á augnlokunum

Eitthvað sérstakt tilefni? Þetta er förðunin sem þú ættir að vera að vinna með. Með þessu geturðu haft fatnaðinn frekar stílhreinan og getur haft þig til á methraða.

Masha Ma
Tveir tónar af varalit

Brúnn varalitur á eftir vörinni og aðeins rauðari á neðri. Þarna geturðu komið fólki aðeins á óvart án þess að það sé of áberandi.

Balmain
Ferskleiki í fyrirrúmi

Þetta er fullkomið fyrir helgina, og þá sérstaklega ef þú átt leið í brunch. Ferskt og flott, þú lítur út eins og þú sért varla máluð og þín náttúrulega fegurð fær að njóta sín. 

Jour/ne
Pastellitaður augnskuggi

Ljósfjólublár er litur vorsins, og má alveg skella honum á augun líka. Slepptu maskaranum og settu vel af ljósfjálubláa augnskugganum, eða ljósbleika, eða ljósgræna, svo lengi sem það er pasteltónn. Finndu þinn lit og smyrðu honum á þig. 






×