Innlent

Áslaug og Kjartan úti

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Heimildir herma að hvorki Áslaug Friðriksdóttir né Kjartan Magnússon séu ofarlega á lista
Heimildir herma að hvorki Áslaug Friðriksdóttir né Kjartan Magnússon séu ofarlega á lista
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna borgarstjórnarkosninganna samþykkti í gær drög að tillögu um lista fyrir kosningarnar. Samkvæmt heimildum er Marta Guðjónsdóttir eini sitjandi borgarstjórnarfulltrúi flokksins sem á möguleika á endurkjöri.

„Við afgreiddum þetta frá okkur en nú tekur við að hringja í fólk og kanna hvort það tekur sæti,“ segir Sveinn H. Skúlason formaður kjörnefndar. „Þegar búið er að tala við fólk verður listinn lagður fyrir fulltrúaráðið á fimmtudag.“

Heimildir herma að hvorki Áslaug Friðriksdóttir né Kjartan Magnússon séu ofarlega á lista. Hins vegar eigi Marta Guðjónsdóttir möguleika á endurkjöri taki hún sæti. Sveinn gat ekki tjáð sig um listann. „Hér eru allir bundnir eiði og segja ekki bofs.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×