Nýtt verk Gerði til heiðurs Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. febrúar 2018 08:00 Gunnar Guðbjörnsson söngvari og Snorri Sigús Birgisson píanisti.
Martial Naredau flautuleikari gerði sér lítið fyrir og samdi verk sem frumflutt verður á tónleikum í Kópavogskirkju annað kvöld til fjáröflunar fyrir viðgerðir á gluggum kirkjunnar. „Hún María Jónsdóttir söngkona, sem sér um tónleikana, hafði samband við mig í haust og bað mig að taka þátt,“ segir hann. „Þar sem tónskáldið John Speight samdi verk til heiðurs Gerði vegna viðgerða á gluggum Skálholtskirkju datt mér í hug að gera slíkt hið sama fyrir Kópavogskirkju. Verkið mitt heitir Gerður og er skrifað með vini mína á Kársnesinu í huga fyrir flautu, fiðlu, lágfiðlu, hörpu, orgel og píanó. Kaflarnir heita Austur, Vestur, Norður og Suður og taka mið af gluggunum, til dæmis er norðurglugginn dökkur og það litar kaflann Norður.“ Martial segir einn hvatann að verkinu vera þann að Gerður hafi starfað mikið í hans gamla heimalandi, Frakklandi. Gunnar Guðbjörnsson er einn söngvaranna sem koma fram á tónleikunum. Hann kveðst hafa átt heima á Kópavogsbrautinni fyrstu sjö árin sín. „Kópavogskirkja er svolítið kirkjan mín því ein af fyrstu minningunum er heimsókn í hana,“ segir hann. „Konan mín vinnur líka í Gerðarsafni og ég á margar ferðir þangað, þá lít ég til kirkjunnar sem ég hef alltaf borið tilfinningar til.“ Með tónleikunum leggst listafólkið á sveif með sóknarnefndinni sem er með söfnunarátak enda viðgerðirnar kostnaðarsamar. Miðaverð er 3.500 krónur og allur ágóði rennur óskertur til verkefnisins.
Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Hinsegin ást í loftinu Lífið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Iceguys beint á toppinn og íslenska bíóárið mallar Bíó og sjónvarp „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Fleiri fréttir Hinsegin ást í loftinu Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Íslensk listakona sló í gegn í Miami Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“