Meistararnir létu þristum rigna á Úlfana | Myndbönd Tómas Þór Þórðarson skrifar 26. janúar 2018 07:30 Stephen Curry skoraði 25 stig í nótt. Vísir/Getty
NBA-meistarar Golden State Warriors unnu annan leik sinn í röð í nótt og þaðð 39. á tímabilinu þegar að liðið lagði Minnesota Timberwolves, 126-113, á heimavelli sínum í Oakland í nótt. Golden State er meðal annars frægt fyrir að vera með ágætis skyttur og þær voru í stuði í leiknum því meistararnir skoruðu hvorki fleiri né færri en 21 þriggja stiga körfu í sigrinum. Kevin Durant var stigahæstur með 28 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst og gaf ellefu stoðsendingar en þetta er tíunda þrennan hans á ferlinum. Hann skoraði sex þrista úr níu tilraunum. Skvettubræðurnir Steph Curry (5/7 í þristum) og Klay Thompson (7/9 í þristum) skoruðu báðir 25 stig en meistararnir fengu svo þrjár þriggja stiga körfur af bekknum til viðbótar í þessum örugga sigri. Liðið er með fjögurra sigurleikja forskot á toppi vestursins. Russell Westbrook var svo í stuði fyrir Oklahoma City Thunder enn eina ferðina þegar að liðið vann Washington Wizards á heimavelli í nótt, 121-112. Westbrook náði ekki þrennu að þessu sinni en hann skoraði 46 stig sem er það mesta sem hann hefur gert á tímabilinu. Hann tók að auki sex fráköst og gaf sex stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Miami Heat - Sacramento Kings 88-89 OKC Thunder - Washington Wizards 121-112 Denver Nuggets - New York Knicks 130-118 Golden State Warriors - Minnesota Timberwolves 126-113
NBA Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Handbolti Snorri kynnti EM-strákana okkar Handbolti Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Handbolti Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Fleiri fréttir Liðsfélagar Guðbjargar ekki fæddir þegar hún spilaði fyrsta leikinn Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Sjá meira