Glamour

Taka þekktar baráttukonur með sér á rauða dregilinn

Ritstjórn skrifar
Emma Stone og Billy Jean King við frumsýningu myndarinnar Battle of the Sexes.
Emma Stone og Billy Jean King við frumsýningu myndarinnar Battle of the Sexes. Glamour/Getty

Það er óhætt að fullyrða að spennan er mikil fyrir Golden Globes verðlaunaafhendinguna í Los Angeles í kvöld. Mikið hefur gengið á í Hollywood undanfarna mánuði og er verðlaunaafhending fyrsti viðburðurinn síðan flett var ofan af Weinstein skandalnum, #metoo byltingunni og nú síðast Times Up. 



Leikkonur ætla að sýna samstöðu í kvöld með því að klæðast svörtu á rauða dreglinum og heyrst hefur að það fjölmiðlafólk sem er staðsett á viðburðinum ætli sér að spyrja öðruvísi spurninga í ár, og ekki bara forvitnast um hönnun fatnaðar fræga fólksins. 



8 leikkonur hafa ákveðið að taka þetta skrefinu lengra en þær hafa boðið þekktum baráttukonum, hver á sínu sviði, með sér á rauða dregilinn. Tilgangurinn með því að er að vekja athygli á málstað þessara kvenna.



Emma Stone tekur með sér Billy Jean King, sem hún leikur einmitt í myndinni Battle of the Sexes en King er fræg tennis hetja sem ruddi brautina fyrir kvenkyns íþróttafólk. Meryl Streep tekur með sér Ai-gen Poo, sem meðal annars er forstjóri National Domestic Workers Alliance. Susan Sarandon mætir með Rosu Clemente, stofnandi Know Thy Self Productions. Emma Watson kemur með Marai Larasi, sem stjórnar Imkaan samtökunum í Bretlandi. Michelle Williams mætir með Tarönu Burke, sem er best þekkt fyrir að hrinda #metoo átakinu af stað fyrir heilum áratug síðan. Laura Dern mætir með Mónicu Ramírez, stofnandi Alianza Nacional de Campesinas. Shailene Woodley kemur með Calinu Lawrence, sem berst fyrir auknum réttindum frumbyggja í Ameríku. Amy Poehler mætir svo ásamt Saru Jayaraman sem leiðir herferðina One Fair Wage. 

Þó að litagleðin verði kannski ekki allsráðandi á rauða dreglinum í kvöld er nokkuð víst að við eigum áhugavert kvöld í vændum!



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×