Ganga frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði Daníel Freyr Birkisson skrifar 8. janúar 2018 13:01 Frá undirritun samningsins. Frá vinstri: Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri og Magnús Geir Sigurgeirsson, teymisstjóri, frá Ríkiskaupum. Þorsteinn Gunnarsson, forstjóri og Sigurgísli Melberg, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs, frá Opnum kerfum. mynd/opin kerfi
Opin kerfi og Ríkiskaup hafa gengið frá rammasamningi um kaup á miðlægum tölvubúnaði. Um er að ræða samning þar sem Opin kerfi eru skilgreind sem forgangsbirgi Ríkiskaupa næstu þrjú árin í kaupum Ríkisstofnana á miðlægum tölvubúnaði. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Opnum kerfum. Samningur var undirritaður í kjölfar útboðsferlis sem lauk nýverið og er markmiðið með honum að tryggja ríkisstofnunum hagkvæmari verð á tölvubúnaði. Allar stofnanir og fyrirtæki í meirihluta eigu ríkisins á hverjum tíma eru aðilar að rammasamningum ríkisins. „Það er ánægjulegt fyrir okkur hjá Opnum kerfum að vera valin sem forgangsbirgi ríkisins þegar kemur að miðlægum búnaði, með þessu höfum við tryggt betri þjónustu og hagstæðari verð til stofnana ríkisins næstu misserin,“ segir Sigurgísli Melberg, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Opinna kerfa. „Samningurinn við Opin kerfi sem forgangsbirgja í kjölfar útboðsins er góð leið til að draga úr og halda í við kostnað í rekstri ríkisins og einfalda alla innkaupaferla,“ segir Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri Ríkiskaupa. Segir í tilkynningunni að tilboð Opinna kerfa hafi verið um 65 prósent af kostnaðaráætlun sem þýðir að áætlaður sparnaður ríkisins á ársgrundvelli geti numið tugum milljónum króna.
Tækni Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira