Stefna Google fyrir að „mismuna“ hvítum karlmönnum Kjartan Kjartansson skrifar 9. janúar 2018 10:20 Fyrrverandi forritari Google málaði sig sem píslarvott málfrelsis þegar hann var rekinn vegna minnisblaðs þar sem hann gaf í skyn að konur væru síður hæfar í starfi en karlar vegna kynferðis þeirra. Vísir/AFP
Tveir fyrrverandi starfsmenn tæknirisans Google hafa stefnt fyrirtækinu vegna þess sem þeir telja mismunun gegn íhaldssömum hvítum karlmönnum. Annar mannanna vakti athygli í fyrra þegar hann skrifaði umdeilt minnisblað þar sem hann hélt því fram að konur væru fámennar í hópi stjórnenda tæknifyrirtækja vegna líffræðilegs munar á þeim og karlmönnum. Fullyrt er í stefnu tvímenninganna að Google notist við ólöglega ráðningarkvóta til þess að hygla konum og minnihlutahópum. Þeir saka Google um að verja ekki starfsmenn með íhaldssamar skoðanir, meðal annars þá sem styðja Donald Trump Bandaríkjaforseta. Þeir fullyrða ennfremur að innan veggja fyrirtækisins verði karlmenn fyrir aðkasti, ógnunum og hefndaraðgerðum vegna þess að þeir séu taldir íhaldssamir í skoðunum, karlmenn og hvítir. Lýsa þeir fyrirtækinu sem „hugmyndafræðilegum bergmálshelli“. Lögmenn Google segjast hlakka til að verja fyrirtækið fyrir ásökununum, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Þegar annar fyrrverandi starfsmaðurinn var rekinn sagði Sundar Pichai, forstjóri Google, að hlutar minnisblaðsins sem hann skrifaði hafi brotið gegn siðareglum starfsmanna. Það hafi einnig stuðlað að skaðlegum staðalmyndum kynjanna á vinnustaðnum.
Google Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Viðskipti innlent „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira