Neyðarkall frá Hugarafli samtökum notenda með geðræna erfiðleika! Málfríður Hrund Einarsdóttir skrifar 1. júní 2018 12:13 Hæstvirtir flokksformenn, Bjarni Benediktsson, Katrín Jakobsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson. Hugarafl eru samtök notenda sem hafa starfað með teymi fagfólks, svokölluðu GET teymi- þar sem sálfræðingar, iðjuþjálfi, félagsráðgjafi ofl. í alls 4 stöðugildum- hafa veitt einstaklingum með geðrænan vanda og fjölskyldum þeirra mikilvæga þjónustu, meðferð og eftirfyld. Starfið hefur byggst á valdeflandi nálgun, hverjum notenda er mætt á eigin forsendum. Úrræðið hefur vakið athygli fyrir árangursríkt starf innanlands og utan fyrir hversu farsælt samstarf fagfólks og notenda hefur reynst. Virðisauki þessa úrræðis felst í samstarfi fagfólks og notenda. Jafningafræðsla og stuðningur frá fólki sem hefur reynslu af geðrænum vanda bætist þannig við þá þjónustu sem fagfólkið getur veitt. Batasögur notenda og rannsóknir á úrræðinu staðfesta vel árangur þess. Á undanförnum árum hefur starf GET/Hugarafls með ungu fólk eflst sérstaklega og það vinnur innan samtakanna undir nafninu UNG-HUGAR að fræðslu t.d. innan skóla um geðrænan vanda. Alþjóðleg stefnumótun á sviði heilbrigðismála byggir í vaxandi mæli á áherslu á hlutverk notenda varðandi mótun og veitingu heilbrigðisþjónustu og brautryðjendastarf GET Hugarafls er í samræmi við þessar áherslur. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins ákvað sl. haust að leggja niður GET-teymið án rökstuðnings. Við höfum leitað til núv. heilbrigðisráðherra sem hefur ákveðið að efla sérhæfða þjónustu í heilsugæslu við fólk með geðrænan vanda og því bundnar miklar vonir við að hann myndi vilja byggja á reynslu og árangri GET- teymisins og tryggja því starfsskilyrði. Ítrekað hefur verið fundað með ráðherrum heilbrigðis- og félagsmála, velferðarnefnd Alþingis, sérfræðingar og heilbrigðisstarfsfólk hefur skrifað stjórnvöldum/í fjölmiðla og rökstutt þörfina fyrir úrræðið, og notendur og fjölskyldur þeirra hafa skrifað, skipulagt aðgerðir og í raun grátbeðið stjórnvöld um að hlífa úrræðinu, allt enn án árangurs. Því fylgir mikil ábyrgð að leggja niður úrræði sem hefur verið árangursríkt og óskiljanlegt að það sé gert án þess að fyrirliggji rannsóknir eða rökstuðningur þar sem sýnt sé fram á að úrræðið skili ekki þeim árangri sem því er ætlað. Þá er það einnig mikil ábyrgð að leggja niður úrræði sem fjöldi fólks og með geðræna erfiðleika treystir á. Fyrir utan þann stóra hóp sem sækir daglega þjónustu og endurhæfingu til GET/Hugarafls þá eru margir sem hafa náð bata sem leita til úrræðisins vegna bakslaga eða vanlíðunar og halda svo áfram sínu lífi eftir að hafa fengið þjónustu í stuttan tíma. GET/Hugarafl er eina úrræðið sem hefur boðið aðstandendum uppá markvissa þjónustu en hjá Hugaraafli eru starfandi sérstakir hópar fyrir aðstandendur. Úrræðið er öllum opið og þangað leitar fólk og aðstandendur einnig þegar geðræn vandkvæði eru að hefjast og greining liggur ekki fyrir. Fyrirhuguð fjölgun geðteyma á heilsugæslustöðvum er mikilvæg viðbót við þá þjónustu sem fyrir er en þjónsta hinna nýju teyma verður veitt af fagfólki og því eðlisólík þeirri þjónustu sem GET hefur getað veitt vegna samstarfsins við notendur í Hugarafli. Starfsmönnum GET hefur verið sagt upp og ef ekki verður brugðist við lokar úrræðið 1. september og þá missir Hugarafl, húsnæði, fagfólk og allt sem gerir starfið mögulegt. Við biðjum ykkur um að staldra við og ræða hvort það sé örugglega vilji ykkar að úrræði sem hefur náð jafn miklum árangri og raun ber vitni og er lífæð svo margra veikra einstaklinga verði lagt niður? Og ef svarið er játandi biðjum við ykkur um að okkur sem höfum starfað óslitið frá árinu 2003 við sjáflboðið starf til að þjóna jafningum með geðræna erfiðleika um rökstuðning fyrir því hvers vegna starf okkar er nú skyndilega metið sem eitthvað sem megi leggja niður. Við biðjum ykkur einnig um að íhuga fjárhagslegar afleiðingar þess að leggja niður ódýrt úrræði og bjóða þess í stað eingöngu uppá sérhæfða þjónustu fagfólks. Síðast en ekki síst biðjum við ykkur um að setja ykkur í spor einstaklings með geðræna erfiðleika og aðstandenda sem nú missa úrræði sem hefur verið þeim akkeri og leið til bata. Við veitum gjarnan allar frekari upplýsingar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal Skoðun Manneklan er víða Brynhildur Bolladóttir Skoðun Velkomin til Helvítis Guðný Gústafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Bullandi hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Hættulegustu tækin í umferðinni Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi Sesselja segja? Hallbjörn V. Fríðhólm skrifar Skoðun Vaxtastefna Seðlabankans – á kostnað launafólks Hilmar Harðarson skrifar Skoðun Suður-Íslendinga sögurnar Hans Birgisson skrifar Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar Skoðun Velkomin til Helvítis Guðný Gústafsdóttir skrifar Skoðun Olíuleit við Ísland? Hallgrímur Óskarsson skrifar Skoðun Hækka launin þín þegar fasteignamatið á íbúðinni þinni hækkar? Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Manneklan er víða Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Sótt að hagsmunum atvinnulausra Steinar Harðarson skrifar Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Launamunur kynjanna eykst – Hvar liggur ábyrgðin? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn verður fórnarlamb Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gefum íslensku séns – að tala íslensku við alla Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Réttnefni: Viðbragð við upplýsingaóreiðu Jón Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Farsæl framfaraskref á Sólheimum Sigurjón Örn Þórsson skrifar Skoðun Austurland – þrælanýlenda Íslands Björn Ármann Ólafsson skrifar Skoðun Gervigreindin stöðluð - öryggisins vegna Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar Skoðun Frelsi, framtíð og vistvænar samgöngur: Hvers vegna Ísland þarf að hugsa stærra Sigurborg Ósk Haraldsdóttir skrifar Skoðun Atvinnustefna er alvöru mál Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun 1984 og Hunger Games á sama sviðinu Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Mikilvægi aukinnar verndunar hafsvæða og leiðrétting Hrönn Egilsdóttir skrifar Skoðun Betri leið til einföldunar regluverks Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Af Millet-úlpum og öldrunarmálum Þröstur V. Söring skrifar Sjá meira
Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal Skoðun
Skoðun Pistil eftir frétt um Davíð Tómas körfuknattleiksdómara Sigurður Ólafur Kjartansson skrifar
Skoðun Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela: Auðlindaránið í heimsvaldastefnunni og hræsnin í „stríðinu gegn fíkniefnum“ Sæþór Benjamín Randalsson skrifar
Skoðun Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal skrifar
Skoðun Hafrannsóknastofnun leggur til 95 prósent samdrátt í sjókvíaeldi á laxi Jón Kaldal skrifar
Skoðun Hvað mun Pútín gera næst með því að ögra samstöðu NATO?: Rússnesk innrás í lofthelgi NATO og hlutverk Íslands í öryggi bandalagsins Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson skrifar
Skoðun Gervigreindin stöðluð - öryggisins vegna Hanna Kristín Skaftadóttir,Helga Sigrún Harðardóttir skrifar
Skoðun Frelsi, framtíð og vistvænar samgöngur: Hvers vegna Ísland þarf að hugsa stærra Sigurborg Ósk Haraldsdóttir skrifar
Stöndum vörð um tónlistarmenntun barna og ungmenna – opið bréf til borgarstjóra Sigrún Grendal Skoðun