Albert Guðmundsson á leið til AZ Alkmaar Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. ágúst 2018 20:54 Albert Guðmundsson fer úr hvítu og rauðu í rautt og hvítt í öðru liði. vísir/getty
Albert Guðmundsson, landsliðsframherji í fótbolta, er að færa sig um set í hollensku úrvalsdeildinni en hann er á leiðinni til AZ Alkmaar frá PSV Eindhoven, samkvæmt heimildum Vísis. AZ borgar hollensku meisturunum tvær milljónir evra eða 250 milljónir króna, samkvæmt heimildum Vísis, fyrir Albert sem gengst undir læknisskoðun á morgun og skrifar í kjölfarið undir samning við félagið. Albert, sem er 21 árs gamall, fékk ekki mörg tækifæri með aðalliði PSV á síðustu leiktíð en fær nú væntanlega fleiri mínútur enda AZ að borga vel fyrir íslenska framherjann.Albert var með Íslandi á HM.Vísir/VilhelmKR-ingurinn uppaldi gekk í raðir Heerenveen árið 2013 en fór svo til PSV fyrir þremur árum og hefur verið stjarnan í varaliði félagsins sem spilar í næst efstu deild hollenska boltans. Hann er fastamaður í U21 árs landsliði Íslands en hann þreytti frumraun sína með A-landsliðinu í Kínabikarnum í janúar í fyrra og vann sér svo inn sæti í HM-hópnum eftir góða frammistöðu í vináttuleikjum ársins. AZ Alkmaar er þekkt fyrir að vera frábær staður fyrir Íslendinga en leikmenn á borð við Grétar Rafn Steinsson, Kolbein Sigþórsson og Jóhann Berg Guðmundsson hafa allir gert garðinn frægan með hollenska liðinu. Þá er AZ þekkt fyrir að sækjast í unga íslenska leikmenn eins og Kolbein og Jóhann Berg en Jónatan Ingi Jónsson, leikmaður FH, kom heim frá Alkmaar í byrjun sumars. AZ Alkmaar hafnaði í þriðja sæti hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Liðið er úr leik í Evrópu í ár en það tapaði í annarri umferð forkeppni Evrópudeildarinnar fyrir Kairat frá Kasakstan.
Fótbolti Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn Sigurvegarinn hafði aldrei hlaupið hálft maraþon áður Sport United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Sjá meira