Hluthafafundur Kortaþjónustunnar samþykkti í janúar að veita stjórn fyrirtækisins heimild til þess að gefa út nýtt hlutafé fyrir ríflega 481 milljón króna að nafnverði til þess að efna áskriftarréttindi til handa félögunum Gikk, sem er í eigu Gunnars M. Gunnarssonar, fyrrverandi forstöðumanns hugbúnaðarsviðs, og Ortak, sem er í eigu hjónanna Jóhannesar Inga Kolbeinssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra, og Andreu Kristínar Jónsdóttur. Stjórnin getur nýtt umrædda heimild innan fimm ára í einu lagi eða hlutum, eins og segir í samþykktum Kortaþjónustunnar.
Sem kunnugt er keypti fjárfestingabankinn Kvika og hópur einkafjárfesta Kortaþjónustuna á eina krónu í nóvember í fyrra. Var þá um það samið að fyrrverandi eigendur fyrirtækisins gætu mögulega, að uppfylltum tilteknum skilyrðum, nýtt sér kauprétt seinna meir og eignast hlut í fyrirtækinu.
Ef hlutafé færsluhirðingarfyrirtækisins verður aukið um 480 milljónir króna að nafnverði, líkt og kveðið er á um í heimild stjórnarinnar, gætu fyrrverandi eigendur þannig eignast 25 prósenta hlut í fyrirtækinu.

Eins og greint var frá í Markaðinum í janúar kom fram í kaupsamningi milli Kviku og Kortaþjónustunnar að með „hliðsjón af núverandi fjárhagsstöðu fyrirtækisins“ hefði verið ákveðið að seljendur fengju eina krónu fyrir hlut sinn í félaginu. Samtímis kaupunum lögðu Kvika og fjárfestahópurinn Kortaþjónustunni einnig til nærri 1.500 milljónir í nýtt hlutafé, en fyrirtækið stóð, eins og kunnugt er, frammi fyrir alvarlegum fjárhagsvanda í kjölfar greiðslustöðvunar breska flugfélagsins Monarch í byrjun október á síðasta ári. Kortaþjónustan var á meðal átta fyrirtækja sem sáu um færsluhirðingu fyrir Monarch.
Í kaupsamningnum segir meðal annars að kaup og hlutafjáraukning fjárfestahópsins hafi verið nauðsynleg til að „koma í veg fyrir að fyrirtækið yrði sett í slitameðferð eða lögþvingað gjaldþrot“. Eftir greiðslustöðvun Monarch hafi Kortaþjónustan fengið á sig endurgreiðslukröfur (e. chargebacks) sem námu „verulegum fjárhæðum“ og ollu fyrirtækinu „alvarlegum fjárhagslegum erfiðleikum“. Svo Kortaþjónustan gæti haldið áfram rekstri var því þörf á hlutafjáraukningu og eins samkomulagi við alþjóðlegu kortafyrirtækin Mastercard og Visa um áframhaldandi aðild að uppgjörskerfum þeirra.
Fjárfestingafélagið Óskabein, sem er meðal annars stór hluthafi í VÍS, er næststærsti einstaki eigandi Kortaþjónustunnar, á eftir Kviku banka, með tíu prósenta hlut. Hlutur Kviku í fyrirtækinu nemur um 41 prósenti en á meðal annarra hluthafa er félagið Res Limited, sem er í eigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis, með tæplega sex prósenta hlut og þá eiga bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, í gegnum eignarhaldsfélagið Frigus, liðlega fimm prósenta hlut.