Michelin mælir með fimm stöðum í Reykjavík Benedikt Bóas skrifar 10. maí 2018 16:00 Sigurður Laufdal yfirmatreiðslumaður Grillsins vann áður á Geranium þriggja stjörnu Michelin veitingahúsi í Kaupmannahöfn. Hann þekkir hvað þarf til til að ná í Michelin stjörnu. Fréttablaðið/Ernir
Matargagnrýnandi Michelin mælir með fimm íslenskum veitingahúsum eftir heimsókn sína hingað til lands fyrir skömmu. Dill er þar á meðal, en staðurinn er sá eini á Íslandi sem hefur þegar hlotið eftirsótta Michelin-stjörnu. Aðrir eru Grillið, Vox, Matur og drykkur og Gallery á Hótel Holti. Um Dill segir hann meðal annars að eldamennskan sé í hæsta gæðaflokki og það sé þess virði að kíkja við. Staðurinn noti hráefni í hæsta gæðaflokki og hver réttur hafi sitt eigið bragð. Undirbúningur sé allur hinn besti til að viðhalda gæðunum. Uppskriftin af graflaxnum á Hótel Holt er frá 1966. Fréttablaðið/GVA Þessi litli staður sé að verða einn sá vinsælasti til að upplifa hina svokölluðu nýju Norrænu matargerð. Þó að hver réttur innihaldi fáein hráefni séu réttirnir flóknir hvað áferð og bragð varðar. Um Vox sagði hann hráefnin vera fersk og að þar einfaldlega gott að borða. Stíll sé yfir staðnum og brönsinn þar sé vinsæll. Eldamennskan skapandi og nútímaleg. Gagnrýnandinn er ánægður með vínseðilinn á Gallery á Hótel Holti. Það er eini staðurinn sem fær hrós fyrir slíkt. Þarna sé klassísk frönsk eldamennska með íslensku hráefni, og segir gagnrýnandinn að uppskriftin að graflaxinum sé frá 1966. Eðlilega minnist gagnrýnandinn á útsýnið á Grillinu og segir að það sé dáleiðandi fallegt – einkum og sér í lagi sólsetrið. Hráefnið sé ferskt, matreiðslan spennandi og að hið unga teymi sem þar starfar hafi skilað glæsilegum og bragðgóðum réttum á hans borð. Gamlar uppskriftir fái nútímalegt útlit á Mat og drykk og þar sé maturinn ekki mjög dýr. Réttirnir séu góðir og íslenska snakkið sem þar er í boði sé frábært.
Birtist í Fréttablaðinu Matur Michelin Neytendur Mest lesið Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Viðskipti innlent Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Viðskipti innlent „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hægir á verðhækkunum matvöru „Gátum ekki setið og beðið endalaust“ Sekta Árvakur um 1,5 milljónir króna vegna fjölda dulinna auglýsinga Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Sjá meira