Ekkert tilboð borist í Higuain sem er þó líklega á förum Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. júlí 2018 17:00 Gonzalo Higuaín hefur skorað 55 mörk í 105 leikjum fyrir Juve síðan hann kom frá Napoli 2016 vísir/getty
Juventus er tilbúið að hlusta á tilboð í argentínska markahrókinn Gonzalo Higuain í kjölfar þess að Cristiano Ronaldo er genginn til liðs við ítalska stórveldið. Talið er að Juventus muni þurfa að losa sig við einhverja leikmenn sem eru með stóra samninga og er Higuain talinn hvað líklegastur til að þurfa frá að hverfa en hann skoraði 23 mörk í 50 leikjum fyrir Juventus á síðustu leiktíð. Framkvæmdastjóri Juventus, Giuseppe Marotta, gefur í skyn að Higuain sé á förum en á meðal sóknarmanna Juventus eru auk Ronaldo; Paulo Dybala, Mario Mandzukic og Douglas Costa svo einhverjir séu nefndir. „Ég ætla ekki að neita því að í kjölfar af komu Cristiano Ronaldo erum við ansi þéttskipaðir af hágæða sóknarleikmönnum,“ segir Marotta í samtali við Sky. Vitað er af áhuga frá Chelsea þar sem Maurizio Sarri, nýráðinn stjóri Chelsea, vill ólmur endurnýja kynnin við Higuain en þeir unnu áður saman hjá Napoli. Þá hefur Higuain einnig verið orðaður við AC Milan, þá mögulega í skiptum fyrir Leonardo Bonucci. „Við munum meta stöðuna á Higuain en það hefur ekkert endanlegt tilboð borist frá Chelsea eða Milan.“ „Við lítum enn á hann sem mikilvægan leikmann fyrir okkur. Nú er augljóslega meiri samkeppni en hann er alvöru atvinnumaður sem við berum mikla virðingu fyrir. Við erum að ræða framtíð hans við hans fólk,“ segir Marotta.
Fótbolti Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tindastóll - Stjarnan 103-88 | Stólarnir lifa góðu lífi Körfubolti Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Fótbolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira