Vöruskiptajöfnuður neikvæður um 14,5 milljarða Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. september 2018 14:41 Verðmæti vöruútflutnings var þó hærri en í ágúst í fyrra. Vísir
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar voru vöruskiptin í síðastliðnum ágústmánuði óhagstæð um 14,5 milljarða króna. Fram kemur á vef Hagstofunnar að í ágúst hafi „fob verðmæti vöruútflutnings [numið] 50,9 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings 65,4 milljörðum króna.“ Verðmæti vöruútflutnings í ágúst var 5,7 milljörðum hærra en í sama mánuði í fyrra, eða 12,7% á gengi hvors árs. Að sögn Hagstofunnar má að hluta rekja hækkunina til aukins verðmætis í útflutningi á kísiljárni og áli. Einnig jókst verðmæti útflutnings í flokknum „aðrar vörur.“ Verðmæti vöruinnflutnings í ágúst 2018 var 13,3 milljörðum króna hærri en í ágúst 2017 eða 25,6% á gengi hvors árs. Munurinn á milli ára skýrist aðallega af auknum innflutningi á fjárfestingavörum og eldsneyti. Hagstofan ítrekar þó að um bráðabirgðatölur er að ræða. Þær kunni að breytast eftir endurskoðun í lok árs. Vöruskiptajöfnuður hefur meira og minna verið neikvæður undanfarin þrjú ár, eins og sjá má hér að neðan.hagstofa íslands
Efnahagsmál Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira