Kawhi Leonard að ganga til liðs við Toronto Raptors? Arnar Geir Halldórsson skrifar 18. júlí 2018 11:00 Leonard í einum af þeim níu leikjum sem hann lék síðasta vetur. vísir/getty
Allt útlit er fyrir að líklega stærstu leikmannaskipti sumarsins í NBA körfuboltanum séu að ganga í gegn þar sem ofurstjörnurnar Kawhi Leonard og DeMar DeRozan eru að skipta um lið. Samkvæmt heimildum ESPN hafa Toronto Raptors og San Antonio Spurs náð samkomulagi um skiptin en samkvæmt sömu heimildum hafa viðræðurnar staðið yfir undanfarnar tvær vikur. Gangi skiptin eftir verða þetta að teljast nokkuð óvænt tíðindi því þó Kawhi Leonard hafi vissulega verið orðaður við brottför frá Spurs í sumar var Raptors líklega ekki ofarlega á óskalistanum hjá kappanum en hann hefur ekki farið leynt með það að vilja ganga til liðs við LeBron James og félaga í LA Lakers. Með þessu er Raptors að taka mikla áhættu þar sem Leonard á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum og gæti þá farið frítt næsta sumar á meðan DeRozan á þrjú ár eftir af sínum samningi. Leonard gæti því tekið eitt tímabil í Toronto en fært sig svo um set til Los Angeles næsta sumar. Að auki er Leonard að koma til baka eftir erfið meiðsli sem gerðu það að verkum að hann spilaði aðeins níu leiki fyrir San Antonio Spurs á síðustu leiktíð. DeRozan hins vegar átti mjög gott tímabil fyrir Raptors þar sem hann skoraði 23 stig að meðaltali í leik auk þess að gefa 5 stoðsendingar og hjálpaði liðinu að vinna deildarkeppnina austan megin en Raptors var svo sópað út af Cleveland Cavaliers í undanúrslitum Austurdeildarinnar.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira