Verndum Geldinganesið Ragnar Karl Jóhannsson skrifar 24. maí 2018 23:10 Í dag er Geldingarnesið skipulagt sem þróunarsvæði, þó að öll strandlínan, frá Blikastaðakró umhverfis Geldinganesið sé undir hverfisvend. Fyrir mörgum árum var aðeins hægt að komast út á Geldinganesið yfir náttúrulegt malarrif á fjöru, en árið 1999 var gerð upphækkun vegna fyrirhugaðs grjótnáms á nesinu og gerður ökuslóði yfir fyrir vörubíla. Í dag er þessi slóði til staðar en ekki fyrir alla að fara þarna yfir. Það mætti bæta við stígum, svo gangandi og hjólandi vegfarendur eigi auðveldara með að komast yfir og geti notið þess sem Geldinganesið býður upp á.Grænt svæði Geldinganesið er ónýtt náttúruperla og yndislegt útivistarsvæði sem á sér sögu. Þarna má finna sjótóftir á austanverðu nesinu og skipsflak á sunnanverðu nesinu. Sögusagnir eru um að einsetukona hafi búið þar og svo var svæðið áður fyrr útigangs svæði fyrir dýr og jafnvel verið aðsetur fyrir sauðhirði á Geldinganesi. Margt er því hægt að byggja á ef svæðið yrði opnað sem útivistar og leiksvæði. Í núverandi aðalskipulagi er Geldinganesið skilgreint sem opið svæði. Þetta er viðurkennt hundasvæði, þarna er kayak-klúbbur með aðsetur og sumir nýta þetta sem útivistarsvæði. Með því að bæta aðgengið væri hægt að opna nesið fyrir fleiri til að njóta þeirrar náttúruparadísar sem Geldinganesið er. Undirritaður sá á einum stað skrifað, hversu notalegt það var að ganga yfir á Geldinganesið til þess að kúpla sig út úr amstri borgarinnar og njóta þess að horfa á borgina frá nesinu með hávaðamengun í fjarska. Því ekki að gera Geldinganesið meira aðlaðandi fyrir okkur sem búum í borginni, sem grænt svæði með göngustígum og bekkjumÚtivist og tómstundir Tilvalið er að setja upp útsýnispall á nesinu sem vísar til borgarinnar. Þarna er hægt að vera með afmarkað hundagerði og ruslastampa í kring. Tækifæri eru að búa til aðlaðandi aðkomu og aðstæður fyrir tómstundaklúbba eins og t.d. kayak-klúbbinn, hjólaklúbba, gönguhópa og svo marga fleiri sem myndu vilja nýta sér heilsueflandi útivist á grænum stað. Ströndin hefur gríðarmikið verndargildi vegna náttúru og fuglalífs, enda ein lengsta ósnerta strandlengja höfuðborgarsvæðisins. Það er mikilvægt að við stækkum það svæði sem friðlýsingin nær til. Við verðum að koma sem mestu af einstakri náttúru svæðisins í skjól fyrir uppbyggingu og ég vil beita mér gegn því að skipulagt verði stórt úthverfi í nesinu. Þess í stað vil ég að það verði varðveitt fyrir börnin okkar sem framtíðarútivistarsvæði Grafarvogsbúa. Með einföldum hætti væri hægt að gera nesið mjög ákjósanlegan áningarstað fyrir svo marga sem eiga leið fram hjá í sínum frítíma í samstarfi við þá sem vilja nýta sér svæðið. Íbúar í hverfinu og útivistarklúbbar gætu notið svæðisins væri það hugsað sem opin náttúruparadís!Höfundur er varamaður í hverfisráði Grafarvogs og skipar 13 sæti á framboðslista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 31.10.26 Halldór Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun Skoðun Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar Skoðun Sundlaugin er ekki vandamálið Unnur Helga Óttarsdóttir skrifar Skoðun Það er ekki nóg að hækka róminn Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Má manneskja skipta um trú — og halda lífi? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Tilkoma gervigreindar – kötturinn í Undralandi? Ólafur Aron Sveinsson skrifar Skoðun Veistu hvaða netvíti á að varast? Vilhjálmur Alvar Þórarinsson skrifar Skoðun Borgarnesréttlætið – saga úr umferðinni Guðmundur H Guðjónsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð og Láki jarðálfur Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Fertugt félag sem ætlar ekki að setjast í helgan stein Guðrún Barbara Tryggvadóttir skrifar Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun Um fóbíu og hatur á Íslam Sverrir Agnarsson skrifar Skoðun Gerast enn kraftaverk á Íslandi? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðey – perla í dvala Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Sjá meira
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun
Skoðun Eru andstæðingar þjóðarmorðs í Palestínu sérlegir stuðningsmenn Hamas-samtakanna? Finnur G Olguson skrifar
Skoðun Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Ráðherra innviða tók af skarið: Reglugerð um vanhæfismörk við stjórn ökutækis loks gefin út Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun
Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason Skoðun