2,1 milljarðs króna fjármögnun Oculis í höfn Kristinn Ingi Jónsson skrifar 4. janúar 2018 06:00 Sjúkdómar í afturhluta augans eru meðhöndlaðir með augnástungum og tækni Oculis felur því í sér byltingu fyrir þá sjúklinga sem þjást af slíkum sjúkdómum. Fyrirtækið á rætur að rekja til Háskóla Íslands og Landspítalans. Mynd/Oculis
Lyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem hefur þróað byltingarkennda tækni við meðhöndlun augnsjúkdóma, hefur samið við þrjá leiðandi alþjóðlega vaxtarsjóði, Bay City Capital, Novartis Venture Fund og Pivotal bio Venture Partners, um 2,1 milljarðs króna hlutafjáraukningu. Þá hyggst félagið setja upp nýjar höfuðstöðvar í Lausanne í Sviss. Nýtt félag, Oculis SA, hefur verið stofnað um höfuðstöðvar félagsins í Sviss og mun það eignast allt hlutafé í Oculis ehf. Rannsóknar- og þróunarstarfsemi Oculis verður eftir sem áður á Íslandi og verður sú starfsemi efld, meðal annars með nýrri rannsóknaraðstöðu og fjölgun starfsmanna, að sögn Páls Ragnars Jóhannessonar, sem mun taka við starfi fjármálastjóra félagsins ásamt því að gegna stöðu framkvæmdastjóra Oculis á Íslandi. Dr. Riad Sherif, sem áður gegndi stöðu yfirmanns hjá alþjóðlega augnlækningafyrirtækinu Alcon og lyfjarisanum Novartis, mun taka við starfi forstjóra Oculis SA. Þá mun dr. Sabri Markabi, fyrrverandi yfirmaður rannsóknar- og þróunar hjá Alcon, gegna starfi þróunarstjóra. „Með hlutafjáraukningunni og aðkomu þessara vísindamanna og sjóða, sem hafa mikla reynslu og þekkingu á því sem við erum að gera, næst tvennt fram. Annars vegar fáum við fjármuni sem við þurfum til þess að halda þróunarstarfi okkar áfram á þeim hraða sem æskilegt er og hins vegar gríðarlega þekkingu. Hvort tveggja styður við að koma félaginu í fremstu röð augnlyfjaþróunar í heiminum,“ segir Páll Ragnar.Byltingarkennd tækni Oculis var stofnað árið 2003 og á rætur að rekja til Háskóla Íslands og Landspítalans, en félagið var stofnað af þeim dr. Einari Stefánssyni, prófessor í augnlækningum, og dr. Þorsteini Loftssyni, prófessor í lyfjafræði. Þeir munu áfram leiða rannsóknir og nýsköpun hjá Ocullis SA. „Hlutafjáraukningin og aðkoma þessara sérhæfðu fjárfesta er mikil viðurkenning fyrir stofnendur félagsins, þá Einar og Þorstein, sem hafa á undanförnum 25 árum náð miklum árangri með rannsóknum og nýsköpun á því hvernig betrumbæta má meðhöndlun augnsjúkdóma,“ segir Páll Ragnar. Starfsemi félagsins byggir á einkaleyfavarinni tækni sem gerir mögulegt að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum. Nú eru sjúkdómar í afturhluta augans meðhöndlaðir með augnástungum og getur tækni Oculis því falið í sér byltingu fyrir þær tugmilljónir sjúklinga sem þjást af slíkum sjúkdómum. Styrkir Tækniþróunarsjóðs og Rannsóknarsjóðs hafa, að sögn Páls Ragnars, skipt lykilmáli í uppbyggingu félagsins, meðal annars öndvegisstyrkur Tækniþróunarsjóðs sem félaginu var veittur í ársbyrjun 2017. Þá lauk Oculis við fjármögnun í júnímánuði árið 2016 sem leidd var af Brunni vaxtarsjóði og Silfurbergi, en þessir fjárfestar tóku einnig þátt í núverandi hlutafjáraukningu. Er hlutafjáraukningunni ætlað að fjármagna áframhaldandi klínískar rannsóknir á OC-118, því lyfi sem lengst er komið í þróun hjá félaginu, auk annarra þróunarverkefna. „Það er ljóst að það þarf frekara fjármagn til þess að koma lyfjunum á markað,“ nefnir Páll Ragnar. „Það fjármagn gæti komið með ýmsum hætti. Við gætum til dæmis leitað til núverandi fjárfesta félagsins, skoðað skráningu félagsins á markað eða mögulegt samstarf við stórt lyfjafyrirtæki sem myndi þá markaðssetja vöruna og ljúka þróunarvinnunni.“ Dr. Riad Sherif, nýr forstjóri Oculis SA, segist mjög ánægður með að ganga til liðs við sterkan hóp starfsmanna félagsins og vinna að þróun þess sem gæti orðið næsta kynslóð augnlyfja. „Með hliðsjón af því lyfi sem lengst er komið í þróun og þeim fjölmörgu tækifærum sem felast í tækni félagsins, þá er viðskiptatækifæri Oculis afar spennandi,“ segir Florent Gros, stjórnarformaður Oculis SA og framkvæmdastjóri hjá Novartis Venture Fund.Starfsemin hér efld Aðspurður segir Páll Ragnar að mikil sóknarfæri séu fyrir félagið. „Ekkert félag eða tækni, neins staðar í heiminum, sem okkur er kunnugt um, leysir með viðlíka árangursríkum hætti þær áskoranir sem eru við augnlyfjagjöf. Við vitum heldur ekki um annað félag sem býr yfir eins góðum klínískum gögnum sem sýna fram á burði til þess að meðhöndla sjúkdóma í afturhluta augans með augndropum.“ Hvað varðar flutning höfuðstöðvanna til Sviss nefnir hann að það sé að mörgu leyti rökrétt skref. „Við Sherif erum að bæta við okkur svissneskum starfsmönnum. Hluti af þeim fjárfestum, sem eru nú að koma inn í félagið með fjármagn, er svissneskur eða með starfsemi í Sviss. Auk þess er auðvelt að nálgast hæfileikaríkt fólk í lyfjageiranum í Sviss. En samt sem áður höfum við hug á því að styrkja starfsemina á Íslandi, til dæmis stækka rannsóknaraðstöðuna og bæta við okkur fólki. Rannsóknar- og þróunarstarf verður því áfram hér á landi.“ Florent Gros, fulltrúi Novartis Venture Fund verður stjórnarformaður Oculis SA, en auk hans er stjórn félagsins skipuð Árna Blöndal, Stefáni Jökli Sveinssyni, Lionel Carnot, Rob Hopfner, dr. Þorsteini Loftssyni og dr. Riad. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Fékk gullmedalíu Evrópsku augnlæknaakademíunnar Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fékk fyrir helgi gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar (European Academy of Ophthalmology). Þetta var tilkynnt á fundi akademíunnar í Amsterdam á föstudag. Um leið var Einar tekinn sem meðlimur í akademíuna en hún telur 48 evrópska augnlækna og vísindamenn. Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag, Háskóla Íslands, Landspítalann og Einar sjálfan. 14. júní 2009 12:42 Lauf og Oculis fá 70 milljóna styrk Tækniþróunarsjóður hefur úthlutað 70 milljóna króna öndvegisstyrknum Sprett til sprotafyrirtækjanna Oculis og Lauf Forks. Félögin þurfa á móti að sýna fram á hlutafjáraukningu sem nemur jafnhárri upphæð og styrkurinn. 26. janúar 2017 09:48 Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Sjá meira
Fékk gullmedalíu Evrópsku augnlæknaakademíunnar Einar Stefánsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands og yfirlæknir við augndeild Landspítalans fékk fyrir helgi gullmedalíu evrópsku augnlækna-akademíunnar (European Academy of Ophthalmology). Þetta var tilkynnt á fundi akademíunnar í Amsterdam á föstudag. Um leið var Einar tekinn sem meðlimur í akademíuna en hún telur 48 evrópska augnlækna og vísindamenn. Þetta eru afar jákvæð tíðindi fyrir íslenskt vísindasamfélag, Háskóla Íslands, Landspítalann og Einar sjálfan. 14. júní 2009 12:42
Lauf og Oculis fá 70 milljóna styrk Tækniþróunarsjóður hefur úthlutað 70 milljóna króna öndvegisstyrknum Sprett til sprotafyrirtækjanna Oculis og Lauf Forks. Félögin þurfa á móti að sýna fram á hlutafjáraukningu sem nemur jafnhárri upphæð og styrkurinn. 26. janúar 2017 09:48