Á alþjóðlegum degi ljósmæðra 5. maí 2018 09:00 Alþjóðlegur dagur ljósmæðra er 5. maí. Á þessum tímamótum heldur þessa mikilvæga stétt daginn hátíðlegan í skugga kjaradeilu og félagskonur gagnrýna stjórnvöld fyrir fálæti og skilningsleysi. Íslenskar ljósmæður er ekki fjölmenn stétt, það eru 280 félagar í Ljósmæðrafélagi Íslands. Nýliðun er hæg. Að jafnaði ljúka tíu hjúkrunarfræðingar framhaldsmenntun árlega og hljóta réttindi til starfa sem ljósmæður og hafa þá lokið 6 ára háskólamenntun. Hvergi á Norðurlöndum hafa ljósmæður lengra nám að baki og jafn víðtæka þekkingu í heilbrigðisfræðum. Aðeins fjórar af þeim tíu ljósmæðrum sem ljúka árlega námi skila sér að jafnaði til starfa á Landspítala sem hlýtur að vera sérstakt áhyggjuefni. Nokkrar velja sér starfsvettvang á öðrum stöðum í heilbrigðiskerfinu, svo sem á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og í heilsugæslunni og það er jákvætt og nauðsynlegt. Félagar í Ljósmæðrafélagi Íslands eldast. Meira en helmingur hópsins er yfir fimmtugt. Í slítandi vaktavinnu tekur starfið toll, það staðfesta fjölmargar uppsagnir undanfarinna vikna sem ekki munu ganga til baka. Þess utan sýnir reynslan að allt að 20% starfsmanna skilar sér ekki aftur til starfa eftir óróleika sem þennan á vinnustað. Ljósmæður sem standa þrískiptar vaktir í fullu starfi mega að auki una því, að á þeim eru brotin mikilvæg ákvæði um hvíldartíma, það eru brotin á þeim lög. Aðeins þrjú ár eru liðin síðan ljósmæður fóru í tíu vikna verkfall. Það situr enn í þeim og hefur áhrif inn í núverandi deilu. Þær unnu vinnuna sína samkvæmt skyldu í því verkfalli en var neitað um laun og þótt dómstóll hafi úrskurðað þeim í vil, þá hefur uppgjör enn ekki farið fram. Þær fara ekki í verkfall í þetta sinn, heldur boða uppsagnir. Þær gera sér ljóst að verkfall er bitlaust verkfæri í þeirra höndum þar sem þeim er gert að tryggja neyðarmönnun á hverjum tíma. Sumarið er gengið í garð og í hönd fer einhver annasamasti tími ársins í fæðingum. Gera má ráð fyrir að rúmlega tvö þúsund börn fæðist á landinu í sumar. Við fengum fyrir skemmstu aðeins örlítinn smjörþef af því ástandi sem skapast getur, þegar heimaþjónusta ljósmæðra féll niður í nokkra daga. Um síðir náðust samningar um þessa mikilvægu þjónustu sem unnin er í verktöku fyrir beinan atbeina heilbrigðisráðherra. Vonandi er sá samningur þannig að við framkvæmd hans standi ljósmæður jafnfætis öðrum þeim heilbrigðisstéttum þar sem Sjúkratryggingar Íslands hafa gert viðlíka verktakasamninga. Ljósmæður hafa í deilu þessari verið undir miklu álagi. Bæði hafa þær glímt við þrýsting stjórnvalda og miklar annir í sínu vinnuumhverfi. Þessi gamalgróna stétt sem lifað hefur með þjóðinni í gegnum súrt og sætt, á hverju sem hefur gengið. Alltaf kom ljósmóðirin, hvort sem úti var sól eða regn, ófærð eða mannskaðaveður, hvort sem búið var í bæ, við afskekktan fjörð eða inn til dala, þessi hreinasta kvennastétt í samfélaginu. Þar er enginn karl. Er nema von að hugurinn leiti til þess hvort skýringuna á bágum kjörum sé að finna í þessari staðreynd ? Erum við að enn að fá staðfest, að sú mismunun sem við horfum upp á sé vegna kerfislægs kynjamisréttis. Myndi það kannski liðka fyrir lausn að þær skiptu um nafn og nefndu sig fæðingarfræðinga eða jafnvel fæðingartæknifræðinga. Íslendingar völdu fyrir nokkrum árum fegursta orð íslenskrar tungu. Það var orðið ljósmóðir. Það segir mikið um þann hug landsmanna. þaðð voru líka fögur fyrirheitin sem ríkisstjórnin gaf í stjórnarsáttmála sínum, að stíga markviss skref til að eyða kynbundnum launamun, að draga muninn betur fram í dagsljósið. Hvað þarf að líða langt fram á ljósbjartan sumardaginn? Sýnum mikilvægri vel menntaðri kvennastétt sanngirni, sýnum réttlæti í verki og samræmum kjör þeirra með sama hætti og aðrir vel menntaðir faghópar búa við. Til hamingju með daginn, ljósmæðurHöfundur er alþingismaður Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason Skoðun Sá tapar sem fyrstur nefnir nasistana: gengisfelling orðsins „rasisti“ Birgir Finnsson Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Tökum höndum saman áður en það er of seint Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun PWC – Traustsins verðir? Björn Thorsteinsson skrifar Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Pólitískar kreddur á kostnað skattgreiðenda Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Loftslagsváin bíður ekki Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Hvers vegna að kenna leiklist? Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Jóna Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Jafnt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir öll Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið í bakkgír Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Í vítahring stöðnunnar og úreldra vísinda Björn Ólafsson skrifar Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Við erum réttindalaus Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Raunir ríka fólksins og bænir þess Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Sjá meira
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun