Skelfilegur fyrsti leikhluti og Cleveland lent undir | Sjáðu ótrúlegan endi í Boston Anton Ingi Leifson skrifar 15. apríl 2018 22:41 James og félagar eru lentir undir gegn Indiana. Þeir þurfa að spýta í lófana. vísir/afp
Indiana gerði sér lítið fyrir og skellti Cleveland í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppni NBA-körfuboltans en sigurinn var óvæntur. Í hinum leiknum vann Boston Milawukee í framlengingu. Cleveland spilaði skelfilega í fyrsta leikhluta. Liðið skoraði einungis fjórtán stig, LeBron James reyndi ekki skot og ekkert gekk upp. Indiana vann leikhlutann 33-14 og var komið með vænlega forystu. Þessa forystu lét liðið aldrei af hendi og vann að endingu með átján stiga munu, 98-80. Cleveland vann tvo leikhluta af fjórum en afar slakur fyrsti leikhluti gerði nánast út um leikinn fyrir stjörnuprýtt lið Cleveland. LeBron James skoraði 24 stig og gaf tólf stoðsendingar en hjá Indiana var Victor Oladipo stigahæstur með 32 stig. Indiana því komið í 1-0 í seríunni. Í hinum leik dagsins vann Boston sex stiga sigur, 113-107, á Milwaukee í lygilegum framlengdum leik. Terry Rozier virtist hafa tryggt Boston sigurinn með þriggja stiga körfu tveimur sekúndum fyrir leikslok en Milwaukee tók leikhlé og Khris Middleton skoraði körfu lengst fyrir utan þriggja stiga línuna. Allt jafn, 99-99, en í framlengingunni reyndust leikmenn Boston sterkari á heimavelli en leikið var í hinni frægu TD-Garden höll í Boston. Giannis Antetokounmpo var magnaður hjá Milwaukee og skoraði 35 stig en Al Horford var fremstur meðal jafningja hjá Boston, með 24 stig. Alls skoruðu fimm leikmenn nítján stig eða meira fyrir Boston í leiknum. Liðssigur þar á bæ en þeir eru því komnir í 1-0 í einvíginu gegn Milwaukee.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira