Fokk ofbeldi húfur eftir fremstu hönnuði landsins seldar á uppboði Ritstjórn skrifar 21. febrúar 2017 18:00 Húfurnar þrjár verða seldar á uppboði. Myndir/Saga Sig
Á fimmtudaginn næsta munu þrjár sérstakar útgáfur af Fokk ofbeldi húfunum fara á uppboð. Verkefnið er samstarf UN Women og Vodafone en uppboðið mun fara fram í verslun Vodafone í Kringlunni. Einnig munu gestir fá tækifæri til þess að vinna glæsilega vinninga eins og myndatöku hjá Sögu Sig, snjallsíma og bluetooth hátalara. Listakonurnar og hönnuðurnir Elín Hansdóttir, Erna Einarsdóttir hjá Geysi og Hildur Yeoman hönnuðu hver sína eigin útgáfu af húfunni frægu sem hefur selst eins og heitar lummur seinustu tvær vikur. Fokk Ofbeldi partýið verður, eins og fyrr segir, á fimmtudaginn næsta í verslun Vodafone í Kringunni og hefst klukkan 19. Þorsteinn Guðmundsson mun stýra gleðinni. Það má búast við heljarinnar skemmtun enda verður spennandi að fylgjast uppboðinu fara fram. Húfan sem hönnuð er af Hildi Yeoman.Mynd/Saga Sig
Mest lesið Vínrauðar partývarir sem stela senunni Glamour Stolið frá körlunum Glamour Trendin af götunum Glamour Biðst afsökunar á hönnunarstuldi Glamour Nýjasta andlit Essie Glamour Best klæddar á Golden Globes 2016 Glamour Ólétt Natalie Portman kafar fyrir James Blake Glamour Konur sem hanna Glamour Critics Choice: Rauði dregillinn Glamour Höldum bláa daginn hátíðlegan Glamour