Skoraði körfu en var rekinn út úr húsi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. nóvember 2017 23:00 Carmelo Anthony. Vísir/Getty
Carmelo Anthony hélt að hann hefði skorað körfu og væri á leið á vítalínuna til að taka víti að auki í leik í NBA-deildinni síðustu nótt. Niðurstaðan var hinsvegar sú að kappinn var sendur í sturtu. Carmelo Anthony var rekinn út úr húsi í þriðja leikhluta í leik Oklahoma City Thunder og Portland Trail Blazers í NBA-deildinni í gærkvöldi en Thunder-liðið tapaði leiknum á endanum með fjórum stigum, 99-103. Carmelo Anthony setti boltann ofan í körfuna og það leit í fyrstu út fyrir að Portland-maðurinn Jusuf Nurkic hefði brotið á honum. Þegar betur var á gáð þá fór olnbogi Carmelo Anthony í Jusuf Nurkic áður en hann setti boltann í körfuna.CARMELO ANTHONY HAS BEEN EJECTED!!! pic.twitter.com/wL0hkrgbHA — NBC Sports Northwest (@NBCSNorthwest) November 6, 2017 Dómararnir skoðuðu atvikið aftur á sjónvarpsupptöku og dæmdu í kjölfarið óíþróttamannslega villu tvö á Carmelo Anthony sem þýddi að hans þátttöku í leiknum var lokið. Carmelo Anthony skildi ekki neitt í neinu eftir leiki. „Ég hef ekkert að segja um þetta. Deildin mun gera það sem er rétt,“ var það eina sem kom frá Carmelo Anthony. „Ég hef aldrei séð það áður að leikmaður setur niður körfu og fær víti að auki en er síðan rekinn út úr húsi,“ sagði Billy Donovan, þjálfari Oklahoma City Thunder eftir leikinn. Carmelo Anthony var kominn með 15 stig og 6 fráköst á 23 mínútum þegar hann var sendur í sturtu. Russell Westbrook, liðsfélagi Anthony hjá Thunder-liðinu var alveg til í tjá sig. „Þetta er bara vitleysa. Það er ekkert vit í þessu,“ sagði Russell Westbrook.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira