Um 830 starfsmenn Landsbankans seldu bréfin sem þeim voru gefin Haraldur Guðmundsson skrifar 19. apríl 2017 09:00 Heimild til kaupa á eigin hlutum í Landsbankanum var veitt á aðalfundi hans í apríl í fyrra. Fréttablaðið/Ernir
Um 830 núverandi eða fyrrverandi starfsmenn Landsbankans, sem fengu hlutabréf í bankanum gefins árið 2013, ákváðu í fyrra að taka tilboði fyrirtækisins um að selja hlutabréf sín fyrir um alls 1.391 milljón króna. Langflestir þeirra seldu bankanum bréf sín í september eða þegar endurkaupaáætlun fyrirtækisins hófst. Bankaráð Landsbankans ákvað í september 2016 að bankinn myndi kaupa eigin hluti í bankanum í samræmi við samþykkt aðalfundar í apríl í fyrra. Endurkaupin skyldu nema allt að 480 milljónum hluta eða tveimur prósentum af útgefnu hlutafé bankans. Markmiðið með endurkaupunum var að lækka eigið fé og gefa hluthöfum tækifæri til að selja hluti sína sem þeim hafði áður verið óheimilt að gera. Samkvæmt ársreikningi Landsbankans fyrir 2016 fækkaði hluthöfum um 832 frá árslokum 2015 til loka 2016. Þá hafði bankinn keypt 133,5 milljónir eigin hluta á meðalverðinu 10,42 á hlut að heildarfjárhæð 1.391 milljón króna. Enginn af framkvæmdastjórum bankans seldi. Þriðju og síðustu lotunni í endurkaupaáætlun bankans lauk 24. febrúar og keypti hann þá alls 8.509.625 hluti á genginu 10,62. Hluthafar bankans seldu þá bréf í félaginu fyrir rétt rúmar 90 milljónir króna. Rétt er að taka fram að um 430 fyrrum stofnfjárhafar í Sparisjóði Vestmannaeyja og Sparisjóði Norðurlands, sem runnu inn í Landsbankann, voru einnig hluthafar í Landsbankanum þegar endurkaupaáætlunin tók gildi.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Sjá meira