Jólaspá Siggu Kling - Steingeitin: Aðallífsspekin þín mun snúast um ástina 1. desember 2017 09:00
Elsku Steingeitin mín! Eins margbreytileg og dularfull persóna þú ert þá finnst fólki þú mest vera hagsýn og heilsteypt, en ef fólk rýnir inn í hjarta þitt sér það andlega sterka persónu sem það átti ekki von á. Þeir sem eru svo heppnir að tengjast við þig detta í lukkupottinn, því þú ert að eilífu vinur, svo tryggur ertu þeim sem þú elskar. Það tekur þig langan tíma að verða ástfanginn og svo líka eilífan tíma að hverfa út úr þeim hughrifum og þessar tilfinningar geta skapað stríð í huga þinum. En ef þú elskar satt og rétt og þú leggur höfuð þitt að hjarta þess sem þú elskar (eða bringu, hversu asnalega sem það hljómar) – og þú finnur að þú ert örugg þá ertu á réttum stað. Næstu þrír mánuðir sýna þér svo sannarlega framtíð þína, það er eins og þú finnir á þér hvað gerist næst. Eins varkár og þú ert þá sleppirðu þér lausri og þú finnur að þú flýtur án þess að þurfa kork eða kút. Láttu engan segja þér hvað er rétt eða rangt því þú færð svo sterkar tilfinningar gagnvart öllu sem þú vilt, svo enginn getur hindrað þig. Aðallífsspekin þín mun snúast um ástina svo gefðu þér tíma til að njóta þess að elska og þá færðu það sem þú vilt, en ef þú ert alltaf að bíða eftir að aðrir gefi þér tíma eða tapaða ást aftur gerist ekki neitt. Örlæti þitt og ástríki mun skapa þér vini af ólíkum toga sem munu hjálpa þér þegar þú þarfnast mest hjálpar. Þú elskar svoleiðis af öllu hjarta og sál en það getur samt stoppað þig í að skipta um skoðun um hvað sé í raun rétt og satt í ástinni. Þú gerir allt með stæl og ert sannkölluð fyrirmynd, en láttu ekki það að vera Steingeit halda þér niðri í einhverjum kassa því hún getur drepið mann með því að vera of ábyrg í framtíðinni. Ég vel ávallt Steingeit til að vinna fyrir mig því hún mun ávallt standa fyrir sínu og við sitt, en stattu með þér og þinni hugsjón því styrkur þinn mun skila þér á rétta leið.Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður. Setningin til þín er: Ekki vera Box-y vertu Fox-y – Litlir kassar (Þokkabót)
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið „Endurtek í sífellu: Ég vil ekki deyja, ég vil ekki deyja“ Áskorun Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Lífið Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Lífið „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Lífið „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Bíó og sjónvarp Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Lífið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Þjóðarsálin í reiðhöllinni Lífið Fleiri fréttir „Þetta lag minnir mig alltaf á að hafa tapað Idolinu“ Tíminn sem fór í að ræða perra inni í hreyfingunni með ólíkindum Átta ára með sinn eigin bíl á bílasýningu á Akureyri Heilmikil skemmtidagskrá og samsöngur á Þingvöllum í dag Inga Tinna og Logi greina frá kyni barnsins Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Sjá meira