Phaeton endurvakinn sem rafmagnsbíll í Genf 2018 Finnur Thorlacius skrifar 21. september 2017 09:00 Volkswagen Phideon GTE er nú í boði í Kína, en hann er tengiltvinnbíll.
Volkswagen framleiddi flaggskip sitt Phaeton á árunum 2002 til 2016 og framleiddi alls 84.235 eintök af þessum stóra lúxusbíl sem mörgum fannst að ætti ekki heima í bílaúrvali Volkswagen. Framleiðslunni, sem fram fór í Dresden í austurhluta Þýskalands, var semsagt hætt í fyrra þar, en hélt samt áfram í Kína og er þar framleiddur undir nafninu Phideon. Meiningin áður en ákvörðun var tekin um að hætta framleiðslu Phaeton í Þýskalandi var að kynna nýja kynslóð hans á næsta ári. Volkswagen hefur í raun aldrei gefist upp alveg upp á framleiðslu Phaeton fyrir Evrópumarkað þó svo hann fáist þar ekki nú. Til vitnis um það þá ætlar Volkswagen að sýna nýja gerð bílsins á bílasýningunni í Genf í mars á næsta ári, en sá bíll mun eingöngu verða drifinn áfram á rafmagni. Hann á að komast heila 600 kílómetra á fullri hleðslu. Volkswagen finnst það sérlega við hæfi að flaggskip fyrirtækisins sé hreinræktaður rafmagnsbíll og það rímar ágætlega við nýja stefnu þess eftir dísilvélasvindlið. Þó svo að Volkswagen ætli að kynna Phaeton í Genf í mars á næsta ári þá kemur hann líklega ekki á markað fyrr en örpu hvoru megin við áramótin 2019/2020.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent