Facebook semur við BuzzFeed og Vox Kristín Ólafsdóttir skrifar 24. maí 2017 21:38 Facebook er sagt hafa tvenns konar myndbandaframleiðslu í burðarliðnum. Vísir/AFP
Samfélagsmiðillinn Facebook hefur samið við netmiðlana Vox Media, BuzzFeed, ATTN og Group Nine Media og fleiri um að standa að gerð netþáttaraða fyrir væntanlega myndbandaveitu samfélagsmiðilsins. Miðlarnir sem Facebook hefur samið við sérhæfa sig flestir í framleiðslu á efni fyrir yngri kynslóðir internetnotenda. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmönnum sínum. Facebook er sagt hafa tvenns konar myndbandaframleiðslu í burðarliðnum, annars vegar skrifaða 20-30 mínútna þætti, sem Facebook mun eiga, og hins vegar styttri þætti, um 5-10 mínútur, sem ekki þurfa endilega að byggjast á handriti. Facebook mun ekki hafa höfundarrétt á þeim síðarnefndu. Þetta nýjasta útspil Facebook, sem tilkynnt var um á síðasta ári, er sagt liður í því að trekkja að auglýsendur og keppa þannig við miðla á borð við YouTube og Snapchat.
Facebook Mest lesið Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira