Hlutur TM í Stoðum metinn á 1,8 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 31. ágúst 2017 07:00 Sigurður Viðarsson, forstjóri TM.
Eignarhlutur tryggingafélagsins TM í eignarhaldsfélaginu Stoðum, áður FL Group, var metinn á tæpa 1,8 milljarða í bókum félagsins í lok júnímánaðar. Hluturinn er langsamlega stærsta einstaka fjárfestingareign félagsins. TM á óbeint 12,5 prósenta hlut í Stoðum í gegnum félagið S122 ehf. og 1,1 prósents hlut í helstu eign Stoða, evrópska drykkjarframleiðandanum Refresco Gerber sem er skráður á markað í Hollandi. Miðað við núverandi gengi bréfa Refresco Gerber er markaðsvirði félagsins um 163 milljarðar króna. Samkvæmt því er óbeinn hlutur TM í félaginu metinn á um 1.790 milljónir króna. Stoðir eiga 8,87 prósenta hlut í Refresco og er sá hlutur metinn á um 14,2 milljarða króna. Til samanburðar var hluturinn bókfærður á 12,7 milljarða í lok síðasta árs. Eftir yfir tuttugu prósenta hækkun í aprílmánuði hefur gengi bréfa Refresco lækkað um tíu prósent í sumar. Eins og Fréttablaðið greindi frá í apríl keyptu íslenskir fjárfestar ásamt TM rúmlega fimmtíu prósenta hlut í Stoðum af Glitni HoldCo og erlendum fjármálastofnunum. Auk TM samanstóð kaupendahópurinn af félögum á vegum Jóns Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra FL Group, Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra Skeljungs, Örvari Kjærnested, fjárfesti og stjórnarmanni í TM, og Magnúsi Ármanni, fjárfesti og fyrrverandi stjórnarmanni í FL Group.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Viðskipti erlent Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Viðskipti innlent Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Fleiri fréttir Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Sjá meira