Keypti 80 prósenta hlut í Basko fyrir yfir 1,5 milljarða Kristinn Ingi Jónsson skrifar 12. júlí 2017 10:00 Basko rekur meðal annars verslanir 10-11. Vísir/GVA
Framtakssjóðurinn Horn III, sem er í rekstri Landsbréfa, keypti áttatíu prósenta hlut í Basko í fyrra á rúmlega 1,5 milljarða króna, að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi sjóðsins sem Markaðurinn hefur undir höndum. Virði félagsins var þannig metið á tæpa 1,9 milljarða króna í viðskiptunum. Það er 13,5 prósentum lægra en það verð sem Skeljungur hyggst greiða fyrir allt hlutafé í félaginu. Basko á rekstrarfélag Tíu ellefu hf., Ísland verslun hf. og Imtex ehf., en undir þessi félög heyra meðal annars 10-11 verslanirnar, verslanir Iceland, kaffihús Dunkin Donuts og hamborgarastaðurinn Bad Boys Burgers & Grill. Tilkynnt var um kaup Horns III á áttatíu prósenta hlut í félaginu í lok síðasta sumars, en um var að ræða fyrstu fjárfestingu sjóðsins. Seljendur voru félög tengd stjórnendum Basko og bresku matvörukeðjunni Iceland Foods. Í maí síðastliðnum var síðan greint frá því að olíufélagið Skeljungur hefði í hyggju að kaupa allt hlutafé í Basko. Var þá tekið fram að áætlað kaupverð væri 2,2 milljarðar. Í ársreikningi Horns III kemur auk þess fram að sjóðurinn hafi í fyrra keypt félögin Hagvagna, Hópbíla og Hvaleyri fyrir rúma 2,3 milljarða króna. Tilkynnt var um kaupin í nóvember í fyrra, en seljendur voru hjónin Gísli J. Friðjónsson og Hafdís Alexandersdóttir. Hagvagnar hafa annast akstur á vegum Strætó, einkum til og frá höfuðborgarsvæðinu, en Hópbílar er umsvifamikið félag í rekstri hópferðabifreiða. 207 milljóna króna tap varð af rekstri Horns III í fyrra. Hluthafar eru rúmlega þrjátíu talsins en Lífeyrissjóður verslunarmanna og Gildi eru stærstir í þeim hópi.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál.
Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira