Hagsmunagæsla í miðbænum. Hver á Víkurgarð? Hjörleifur Stefánsson skrifar 1. september 2017 07:00 Ráðagerðir um að breyta Landsímahúsinu í hótel hafa lengi verið í mótun og eigendur hússins hafa lagt sig fram um að haga málum þannig að framkvæmdin verði eins arðbær og kostur er. Í því efni hafa þeir fengið dyggan stuðning skipulagsyfirvalda í Reykjavík. En jafnframt hafa báðir þessir aðilar, húseigandinn og skipulagsyfirvöld, reynt að forðast hatrömm átök við þá sem hafa mótmælt ýmsum þáttum ráðagerðarinnar. Eindregin mótmæli gegn eyðingu gamalla, merkra húsa við Ingólfstorg og Thorvaldsensstræti báru til dæmis þann árangur að þeim verður líklega hlíft. Ef það gerist þá verður það ekki vegna þess að Reykjavíkurborg hafi gætt hagsmuna okkar, heldur þrátt fyrir að hún gerði það ekki. Nú hefði annars mátt ætla að í þessum slag ætti Reykjavíkurborg að vera gæsluaðili hagsmuna hins almenna borgara og tryggja að byggingaráformin gangi ekki á umhverfisgæði borgarinnar. En því miður verður ekki séð að það sé raunin. Áhugamenn um varðveislu menningarminja og umhverfisgæða hafa þurft að berjast fyrir því að þessum þáttum verði ekki varpað fyrir borð. Á meðan barist var gegn niðurrifi húsanna við Ingólfstorg og Thorvaldsensstræti, heimilaði Reykjavíkurborg húseigandanum að hækka Landsímahúsið með því að setja kvisti á risið þótt það gangi í berhögg við hagsmuni almennings. Betra væri að húsið yrði áfram eins og það er og hækki ekki. Hvers vegna gengur Reykjavíkurborg gegn hagsmunum almennings – hvaða hag hefur Reykjavíkurborg af því að leyfa stækkun á þessu húsi sem er of stórt fyrir? Skipulagsyfirvöld vilja nú heimila að ný viðbygging rísi við suðurgafl Landsímahússins í stað þeirrar sem þar er nú og nýja byggingin á að teygja sig að Kirkjustræti og leggja undir sig væna sneið af gamla kirkjugarðinum. Þessu hefur verið kröftuglega mótmælt í mörgum blaðagreinum á undanförnum vikum, en flest bendir til að ekki verði tekið tillit til mótmælanna. Þeir sem mæla þessu bót gera það með fullyrðingu um að miklu hafi verið raskað í kirkjugarðinum og því megi nota þessa sneið hans í fjáraflaskyni. Vissulega hefur staðnum verið sýnd vanvirðing um nokkurra áratuga skeið, en í þúsund ár sýndu Reykvíkingar garðinum sóma og í meira en heila öld eftir að hætt var að grafa í honum var gengið um hann með tilhlýðilegri virðingu. Raskið sem þarna hefur átt sér stað á undanförnum áratugum ætti að verða hvatning til að snúa við blaðinu en ekki réttlæting fyrir frekari spjöllum. Ákvörðunin um að byggja í kirkjugarðinum vekur enn meiri furðu en heimildin til að hækka húsið. Hvaða hagsmunir knýja borgaryfirvöld til að fórna hluta af elsta kirkjugarði borgarinnar? Enginn hefur hag af þessu. Vera kann að húseigandinn telji að þetta sé heppilegra fyrir hann, en þegar til lengdar lætur tapa allir, hann líka. Það sem gerir Reykjavík að áhugaverðum stað lætur undan skref fyrir skref. Hækkun á Landsímahúsinu rýrir gildi Austurvallar og viðbyggingin sem nú er áformuð veldur spjöllum á einum merkasta minjastað borgarinnar, Víkurkirkjugarði. Þetta gengur ekki. Við eigum að leggja alúð við minjastaði borgarinnar og fegra stræti og torg eins og kostur er þótt það falli ekki að stundarhagsmunum einstaklinga. Höfundur er arkitekt. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Drasl Hafþór Reynisson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Halldór 15.06.2024 Halldór Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Tvö hundruð milljarða afsláttur VG Inga Lind Karlsdóttir Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Skoðun Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Brosum breitt Halla Signý Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Um læknisvottorð til vinnuveitenda Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ert þú í tengslum? Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Hin hljóða millistétt Bjarki Ómarsson skrifar Skoðun Af hverju er verðlag hér tvöfalt hærra en í Evrópu? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar hríðinni slotar Ásta F. Flosadóttir skrifar Skoðun Nemendalýðræði á brauðfótum Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Mikilvægi kínverskra ferðamanna fyrir Ísland og áhrif beins flugs frá Kína Guðmundur Franklín Jónsson skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun