Fjölbreytileiki er mikilvægur 27. janúar 2017 14:30 Björk Baldvinsdóttir, sviðsstjóri sölu- og viðskiptaþróunar hjá ISS.
ISS er eitt þriggja fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að hljóta Jafnlaunavottun VR. Fyrirtækið hefur að leiðarljósi að árangur þess byggist á fjölbreytileika í stjórnun þar sem gildi og viðhorf beggja kynja komi fram. Fjölbreytta liðsheils þurfi til að stýra fyrirtækjum. „ISS er virkilega stolt af því að vera eitt þriggja fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að hljóta Jafnlaunavottun VR, og við lítum á vottunina sem hluta af samfélagslegri ábyrgð fyrirtækisins,“ segir Björk Baldvinsdóttir, sviðsstjóri sölu- og viðskiptaþróunar hjá ISS. Hún hefur starfað hjá ISS í sautján ár og situr jafnframt í framkvæmdastjórn og framkvæmdaráði fyrirtækisins.ISS er eitt þriggja fyrstu fyrirtækja á Íslandi til að hljóta Jafnlaunavottun VR.„Það er eðlilegur hlutur í rekstri fyrirtækja að sýna starfsfólki þá virðingu að meta til jafns framlag þeirra óháð kyni,“ segir Björk en hjá ISS starfa 750 starfsmenn og þar af eru 70 prósent konur. ISS er leiðandi í fasteignaumsjón og býður upp á fjölbreytta þjónustu á fyrirtækjamarkaði. Til dæmis hádegisverðarþjónustu, ræstingar og fasteignaumsjón. „Markmið ISS er að vera fremsta þjónustufyrirtæki á Íslandi,“ segir Björk og bendir á að í framtíðinni muni stjórnendur fyrirtækja leggja meiri áherslu á fasteignastjórnun. „Við leggjum ávallt áherslu á að velja hæfasta fólkið í öll störf. Við höfum að leiðarljósi að árangur fyrirtækisins byggist á fjölbreytileika í stjórnun enda mikilvægt að gildi og viðhorf beggja kynja komi fram í stjórnun fyrirtækja,“ segir Björk sem telur að heimur viðskipta sé að breytast. „Hraði og flækjustig eru að aukast og þar með þarf fjölbreyttari liðsheild til að stýra fyrirtækjum. Ólík þekking, reynsla og hæfni leiða til aukinna skoðanaskipta, gagnrýnni umræðu og dýpri greiningar á málum, sem aftur leiða til betri ákvarðanatöku.“ Í framkvæmdaráði ISS er jafnt hlutfall kvenna og karla. Björk ráðleggur öllum fyrirtækjum að hafa það að markmiði að tryggja fjölbreytileika í stjórnun. „Það er margsannað að það leiðir til betri greiningar, árangursríkari ákvarðanatöku og því betri rekstrarárangurs fyrirtækisins.“
Mest lesið Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Afsláttardagar skýri skyndilega hækkun bensínverðs Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent