Tólfti sigur Boston í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. nóvember 2017 08:31 Al Horford og félagar hafa unnið 12 leiki í röð. vísir/getty
Sigurganga Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta heldur áfram en í gær vann liðið Toronto Raptors með minnsta mun, 95-94, á heimavelli. Þetta var tólfti sigur Boston í röð. Al Horford skoraði 21 stig fyrir Boston. Jaylen Brown kom næstur með 18 stig. DeMar DeRozan skoraði 24 stig fyrir Toronto. Hann fékk tækifæri til að tryggja liðinu sigur á lokasekúndunum en skot hans geigaði. Þrír aðrir leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Spútniklið Detroit Pistons lagði Miami Heat að velli, 112-103. Detroit hefur unnið 10 af fyrstu 13 leikjum sínum á tímabilinu. Tobias Harris skoraði 25 stig fyrir Detroit og Avery Bradley 24. Hassan Whiteside var með 20 stig og 12 fráköst í liði Miami. Houston Rockets, efsta lið Vesturdeildarinnar, bar sigurorð af Indiana Pacers, 95-118, á útivelli. James Harden skoraði 26 stig og gaf 15 stoðsendingar í liði Houston sem hefur unnið 11 af 14 leikjum sínum í vetur. Clint Capela skoraði 20 stig og reif niður 17 fráköst. Oklahoma City Thunder vann sinn annan leik í röð þegar liðið lagði Dallas Mavericks að velli, 112-99. Paul George var stigahæstur í liði Oklahoma með 37 stig. Hann hefur skorað samtals 79 stig í síðustu tveimur leikjum Oklahoma.Úrslitin í nótt: Boston 95-94 Toronto Detroit 112-103 Miami Indiana 95-118 Houston Oklahoma 112-99 Dallas
NBA Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport „Ekkert af þessu gekk og þá líður manni ömurlega“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira