Bandaríska flugfélagið United Airlines mun hefja áætlunarferðir á milli New York og Keflavíkur í vor. Fjögur flugfélög bjóða nú upp á beint flug milli New York og Keflavíkurflugvallar.
Auk United flýgur bandaríska flugfélagið Delta, ásamt íslensku flugfélögunum Icelandair og WOW air, til New York.
Á vef Túrista segir að jómfrúarferð United til Íslands sé á dagskrá í lok maí og ætlunin sé að starfrækja flugleiðina fram í byrjun október.
Þar kemur einnig fram að ódýrasti farmiðinn með United, frá Íslandi, kosti í dag um 37 þúsund krónur samkvæmt bókunarvél félagsins.
United hefur Íslandsflug í vor
Tryggvi Páll Tryggvason skrifar

Mest lesið

Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu
Viðskipti innlent

GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum
Viðskipti innlent

Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils
Viðskipti innlent


Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland
Viðskipti innlent

Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum
Viðskipti innlent



Shein ginni neytendur til skyndikaupa
Viðskipti innlent

Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni
Viðskipti innlent