TM hagnast um 1,9 milljarða Sæunn Gísladóttir skrifar 24. ágúst 2017 16:05 Sigurður Viðarsson, forstjóri TM, segir betri afkomu skýrast einkum af hærri fjárfestingatekjum vegna endurmats á óskráðum hlutabréfum. Vísir/Stefán
Hagnaður TM á fyrri helming ársins nam 1.875 milljónum króna, samanborið við 1.174 milljónir króna á sama tímabili árið áður. Fram kemur í tilkynningu að hagnaður TM á öðrum ársfjórðungi var 909 milljónir króna sem er ríflega 200 milljónum króna meiri hagnaður en kom fram í afkomuviðvörun félagsins þann 18. júlí síðastliðinn. Betri afkoma skýrist einkum af hærri fjárfestingatekjum vegna endurmats á óskráðum hlutabréfum. Afkoma af fjárfestingastarfsemi var góð á fjórðungnum og skilaði 4,9 prósent ávöxtun. Afkoma vátryggingastarfseminnar valdi hins vegar vonbrigðum og muni þar mestu um óhagstæða þróun slysamála frá fyrri árum. Á heildina litið hafi afkoma TM á öðrum ársfjórðungi verið góð og arðsemi eigin fjár há, eða 33 prósent á ársgrundvelli. Samhliða birtingu árshlutauppgjörs birtir félagið spá fyrir næstu fjóra ársfjórðunga og endurspeglar hún þá þróun sem er að eiga sér stað í tjónum fyrri ára. Í uppfærðri spá sé gert ráð fyrir að samsett hlutfall næstu 12 mánaða verði 97 prósent. Tjónakostnaður á öðrum ársfjórðungi reyndist mun hærri en spár gerðu ráð fyrir segir í tilkynningu. Eigin tjón á fjórðungnum vaxi þannig um 41,5 prósent borið saman við sama tíma í fyrra en eigin iðgjöld hafa á sama tíma vaxið um 6,9 prósent. Þróun eldri slysatjóna, einkum slysatryggingar sjómanna, vegi þyngst í óhagstæðri tjónaþróun en ökutækjatryggingar hafi einnig þróast með óhagstæðum hætti milli ára. Samsett hlutfall TM á fyrri árshelmingi er 106 prósent og framlegð af vátryggingastarfsemi neikvæð um 435 milljónir króna. Sé litið til síðustu 12 mánaða er samsett hlutfall félagsins 101,5 prósent. Rekstrarkostnaður á fyrri helmingi ársins hækkar um 1,4 prósent milli ára og kostnaðarhlutfall félagsins síðastliðna 12 mánuði er 20,3 prósent, sem nálgast langtímamarkmið TM um að ná kostnaðarhlutfalli undir 20 prósent.
Tengdar fréttir Sjóvá hagnast um 1,8 milljarða Hagnaðurinn jókst umtalsvert milli ára en á sama tímabili í fyrra nam hann 709 milljónum króna. 24. ágúst 2017 15:47 VÍS hagnast um 1,1 milljarð Tryggingafélagið VÍS hagnaðist um 1.107 milljónir króna á fyrri helming ársins 2017, samanborið við 238 milljónir króna á sama tímabili árið 2016. 24. ágúst 2017 15:58 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
Sjóvá hagnast um 1,8 milljarða Hagnaðurinn jókst umtalsvert milli ára en á sama tímabili í fyrra nam hann 709 milljónum króna. 24. ágúst 2017 15:47
VÍS hagnast um 1,1 milljarð Tryggingafélagið VÍS hagnaðist um 1.107 milljónir króna á fyrri helming ársins 2017, samanborið við 238 milljónir króna á sama tímabili árið 2016. 24. ágúst 2017 15:58