Kyrie Irving vill losna frá Cleveland Cavaliers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. júlí 2017 20:19 Kyrie Irving vill ekki spila lengur með LeBron James. Vísir/Getty
Kyrie Irving hefur mögulega spilað sinn síðasta leik með Cleveland Cavaliers en ESPN segir frá því að bakvörðurinn snjalli hafi beðið um að vera skipt til annars félags í NBA-deildinni í körfubolta. Kyrie Irving lagði fram beiðnina á borð eigandans Dan Gilbert í síðustu viku en Irving vill spila þar sem hann fær meira aðalhlutverk í stað þess að vera í skugga LeBron James hjá Cleveland Cavaliers. ESPN-blaðamaðurinn Brian Windhorst, sem þekkir vel til hjá Cavaliers, skrifar fréttina á ESPN en hann segir að LeBron James hafi verið hissa og mjög vonsvikinn þegar hann frétti af beiðni Kyrie Irving. Fyrir aðeins nokkrum dögum tjáði Kyrie Irving sig um frammistöðu Cleveland Cavaliers á markaðnum í sumar og var lýsti henni sem undarlegri. Fyrir ári síðan var Cleveland-liðið ríkjandi meistari en eftir tapið í lokaúrslitum í sumar hefur lítið verið að frétta hjá félaginu. Kyrie Irving hefur verið leikmaður Cleveland Cavaliers frá því að félagið tók hann með fyrsta valrétti í nýliðavalinu 2011. Cleveland hefur komist í lokaúrslitin undanfarin þrjú tímabil. Hann á þrjú ár eftir af samningi sínum en getur sagt sig frá honum fyrir lokatímabilið sem er 2019-20 tímabilið. LeBron James er samningslaus næsta sumar og einhverjar sögusagnir hafa verið um það að hann ætli þá að finna sér nýtt félag. Þessi sprengja gerir ekkert annað en að flækja framtíðarsýn Cleveland Cavaliers. Irving var með flottar tölur á sjötta tímabili sínu í deildinni en hann var með 25,2 stig og 5,8 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hitti úr 40 prósent þriggja stiga skota sinna. Meðaltöl hans á ferlinum eru 21,6 stig og 5,6 stoðsendingar. Það verður ekki auðvelt fyrir Cleveland að leysa þetta mál sem er komið upp með Kyrie Irving. Hvað þeir gætu fengið í staðinn fyrir hann er líka önnur saga og jafnvel enn flóknari.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira