Hanna Katrín: „Ótækt að dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundinn launamunur sé ekki til“ Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 10. febrúar 2017 12:15 Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir ótækt að dómsmálaráðherra gerir lítið úr kynbundnum launamun. Vísir
Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, segir það ótækt að dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundinn launamunur sé ekki til og að ástæða launamunar sé sú að konur verji meiri tíma með börnum sínum. Þetta skrifar Hanna Katrín á Facebook síðu sinni en grein Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra í árshátíðarriti Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, hefur vakið töluverða athygli. Í greininni sem ber yfirskriftina Ástæðulaus aðkoma ríkisvaldsins, segir Sigríður að þó að kannanir mæli 5 prósent kynbundinn launamun þá sé hann of lítill til að hægt sé að fullyrða um kynbundið misrétti á launamarkaði. „Það er rétt að karlar afla almennt meiri tekna en það skýrist af meiri vinnu þeirra utan heimilis. Vafalaust er ástæðan meðal annars sú að konur eiga enn fleiri dýrmætar stundir með börnum sínum en karlar. Hvernig fólk kýs að haga þeim málum hverju sinni er eitthvað sem foreldrar ákveða innan fjölskyldunnar og sú ákvörðun á skilið fulla virðingu,” skrifar Sigríður. „Engu að síður mætti ætla af umræðunni að langt sé í land í „jafnréttismálum.“ Hvernig stendur á því? Enginn vafi leikur á því að umræðan um hinn alræmda launamun kynjanna á þar drýgstan þátt.“ Hanna Katrín segir það vitað að kynbundinn launamunur sé raunverulegur. „Það er hlutverk okkar þingmanna að gera það sem við getum að útrýma því óréttlæti. Þess vegna er ótækt að dómsmálaráðherra haldi því fram að kynbundur launamunur sé ekki til, heldur sé ástæða launamunar að konur verji meiri tima með börnum sínum,“ skrifar Hanna Katrín. „Það er árið 2017 og konur eiga að fá borguð sömu laun fyrir sömu vinnu. Þetta er ekkert til að rífast um.“
Mest lesið Rífa íþróttahúsið Innlent Tæplega tvö hundruð úr sömu fjölskyldu drepin Erlent McKellen heill á húfi Erlent Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Innlent Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Innlent Brutust inn en gripu í tómt Innlent Lægð nálgast landið Veður Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Innlent Pútín heimsækir Kim Erlent Hyggjast einkavæða ríkismiðil Frakka Erlent Fleiri fréttir Rífa íþróttahúsið Samfylkingin ætli ekki að „bara vera með upphrópanir“ Brutust inn en gripu í tómt Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins Kringlan lokuð til fimmtudags Uppsagnir hjá Icelandair og borgarstjóri í Parísarhjóli Borgarstjóri fór fyrstu ferð í nýju parísarhjóli Sextán sæmdir heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Hvergi betra að búa en á Íslandi Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Efast um viðbrögð frá ráðherrum í ljósi „sjálfsmorðsmissjóns“ VG Skora á Sjúkratryggingar að semja við tvo heimilislækna Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Þjóðhátíðardagur, Arnarlax og úrsögn úr Samfylkingunni Rafmagn er komið á í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Sjá meira