Félag varaformanns stjórnar Kviku selur allt í bankanum Hörður Ægisson skrifar 1. nóvember 2017 07:30 Varða Capital átti tæplega 112 milljónir hluta að nafnverði í Kviku og má áætla að félagið hafi fengið í kringum 700 milljónir króna fyrir 7,7 prósenta hlut sinn í fjárfestingabankanum. Vísir/GVA
Fjárfestingafélagið Varða Capital, sem er að stærstum hluta í eigu viðskiptafélaganna Jónasar Hagans Guðmundssonar og Gríms Garðarssonar, hefur selt allan hlut sinn í Kviku en félagið var fimmti stærsti hluthafi fjárfestingabankans með 7,7 prósenta eignarhlut. Sala á öllum bréfum félagsins kláraðist í byrjun þessarar viku, samkvæmt heimildum Markaðarins, en Jónas Hagan hafði tekið við sem varaformaður stjórnar Kviku banka fyrir aðeins sjö mánuðum. Kaupendur að hlut Vörðu Capital voru meðal annars hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir, sem eiga Johan Rönning, í gegnum félagið Sindrandi ehf. sem á núna 2,05 prósenta hlut í Kviku. Þá bætti Einar Sveinsson fjárfestir við sig rúmlega eins prósents hlut í bankanum og á hann núna 2,3 prósent í gegnum eignarhaldsfélagið P126. Jónas Hagan staðfestir í samtali við Markaðinn að fjárfestingafélagið sé búið að losa um allan hlut sinn í Kviku. Aðspurður segir hann að þeir hafi talið þetta rétta tímann til að selja eftir að hafa náð „frábærri ávöxtun“ á fjárfestingu sína í bankanum. „Við göngum því sáttir frá borði,“ segir Jónas. Varða Capital, sem er auk þeirra Gríms og Jónasar í eigu Bandaríkjamannsins Edwards Schmidt, var í hópi fjárfesta sem keypti 65 prósenta hlut í Straumi fjárfestingabanka sumarið 2014 en ári síðar sameinaðist bankinn MP banka undir nafni Kviku. Fjárfestingafélag þeirra, sem kom meðal annars að fjármögnun lúxushótelsins við Hörpu, hagnaðist um rúmlega 220 milljónir króna í fyrra. Samkvæmt heimildum Markaðarins hafa bréf í Kviku verið að ganga kaupum og sölum að undanförnu á genginu 6 til 6,3 krónur á hlut. Varða Capital átti tæplega 112 milljónir hluta að nafnverði í bankanum og því má áætla að félagið hafi fengið samtals í kringum 700 milljónir króna fyrir 7,7 prósenta hlut sinn í Kviku.Jónas Hagan Guðmundsson hefur verið varaformaður stjórnar Kviku banka frá því í mars á þessu ári.Miklar breytingar hafa orðið á hlutahafahópi Kviku á undanförnum mánuðum og misserum. Þannig greindi Markaðurinn frá því í byrjun síðasta mánaðar að fjárfestingafélagið Sigla, sem er í eigu Tómasar Kristjánssonar og hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur, hefði selt allan hlut sinn í fjárfestingabankanum. Félagið var fyrir söluna einn stærsti hluthafi bankans með tæplega 7,3 prósenta hlut. Á meðal kaupenda að bréfum Siglu var Lífsverk lífeyrissjóður og Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir og fyrrverandi gjaldkeri Samfylkingarinnar. Þá bætti félag sem er í meirihlutaeigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis við sig tæplega þriggja prósenta hlut í bankanum í júní síðastliðnum með kaupum á hlut Tryggingamiðstöðvarinnar og var eftir kaupin næststærsti hluthafi bankans með 9,93 prósenta hlut. Nokkrum vikum síðar eignaðist Hjörleifur Jakobsson, fjárfestir og fyrrverandi stjórnarmaður í Kaupþingi, ríflega 3,3 prósenta hlut í Kviku. Seljandi bréfanna var eignarhaldsfélagið Brimgarðar, sem var fyrir viðskiptin næststærsti hluthafi bankans með 8,3 prósent. Kvika festi sem kunnugt er kaup á öllu hlutafé í Virðingu fyrr á árinu en gert er ráð fyrir að samruni félaganna gangi formlega í gegn fyrir áramót. Fjármálaeftirlitið og Samkeppniseftirlitið hafa bæði samþykkt kaup bankans á Virðingu. Í lok september var greint frá því að stjórn Kviku hefði samþykkt að stefna skuli að skráningu hlutabréfa bankans á First North markaðinn í Kauphöllinni fyrir árslok. Hagnaður bankans á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam 946 milljónum króna. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 26,2 prósent en eigið fé Kviku var um 8.200 milljónir króna um mitt þetta ár. Stærstu hluthafar Kviku í dag eru tryggingafélagið VÍS með rúmlega fjórðungshlut, félag í meirihlutaeigu Sigurðar Bollasonar fjárfestis, sem á 9,93 prósenta hlut, Lífeyrissjóður verslunarmanna með 9,55 prósenta hlut og fjárfestingafélag í eigu Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur, fjárfestis og stjórnarformanns VÍS, með liðlega átta prósenta hlut. Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts Viðskipti erlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Opna menningarmiðstöð í Smáralind Viðskipti innlent Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Neytendur Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Viðskipti innlent „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira