Fjármálageirinn greiðir tæplega þriðjung allra opinberra gjalda Kristinn Ingi Jónsson skrifar 9. nóvember 2017 10:00 Fjármálageirinn ber þyngstu byrðarnar þegar kemur að opinberum gjöldum. Vísir/valli
Fyrirtæki í fjármála- og vátryggingastarfsemi greiða tæplega þriðjung allra opinberra gjalda hér á landi, að því er fram kemur í ársriti Samtaka fjármálafyrirtækja sem kemur út í dag. Hefur skattbyrði umræddra fyrirtækja aukist um 233 prósent frá árinu 2010, en á sama tíma hefur tekjuskattsstofninn aðeins aukist um 79 prósent. Umfjöllun samtakanna er byggð á skýrslu fjármála- og efnahagsráðherra um skatttekjur, skattrannsóknir og skattaeftirlit sem lögð var fyrir síðasta löggjafarþing. Alls greiddi fjármála- og vátryggingageirinn tæpa 50 milljarða króna í opinber gjöld í fyrra, en þar af greiddu aðildarfélög samtakanna tæpa 40 milljarða. Í ársritinu er auk þess bent á að arðgreiðslur stóru viðskiptabankanna þriggja – Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans – hafi numið um 200 milljörðum frá árinu 2013. Er hluti ríkisins í þeim um 150 milljarðar. Aðildarfélög samtakanna hafi þannig greitt tæplega 400 milljarða króna til ríkisins frá árinu 2009. Samtökin taka fram að hvergi í Evrópu sé skattlagning á fjármálafyrirtæki hærri en hér á landi. Auk þess sé leitun að ríkjum sem leggi fleiri sérstaka skatta, eins og bankaskatt og fjársýsluskatt, á rekstur slíkra fyrirtækja. Segja samtökin sérstöku skattana rýra að óbreyttu heildarvirði bankakerfisins um allt að 280 milljarða króna en ríkið fer sem kunnugt er með stærstan hluta eignarhalds þess.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira