Stór Citroën á leiðinni Finnur Thorlacius skrifar 14. júní 2017 09:31 Citroën CXPERIENCE tilraunabíllinn sem sýndur var á bílasýningunni í París í fyrra.
Þó svo að Citroën leggi aðaláherslu á framleiðslu jepplinga nú um stundir, sem svo mikil eftirspurn er eftir, þá stendur til að setja stóran fólksbíl á markað og líklegt er að hann muni að mestu fá útlit frá tilraunabílnum Citroën CXPERIENCE sem Citroën sýndi á bílasýningunni í París í fyrra. Sá bíll var ólíkt mörgum öðrum stórum lúxusbílnum ekki leðurklæddur að innan, né með viðarinnleggingum, en var samt afar ríkulegur í útliti. Það er ekki að spyrja að Citroën, fyrirtækið fer ávallt sínar eigin leiðir og eltir ekki tískustrauma annarra bílaframleiðenda. Það er í sjálfu sér markmið Citroën að fara aðrar leiðir en hinir bílaframleiðendurnir og þar hefur Citroën markað sér sérstöðu í gegnum árin. Þessari stefnu ætlar forstjóri Citroën, Linda Jackson, að fylgja en hún tók yfir forstjórastólinn hjá Citroën árið 2014 þegar ákveðið var að stofna lúxusbílaarm innan Citroën sem fékk nafnið DS. Citroën mun næst setja á markað jepplinginn C3 Aircross seinna á þessu ári og fylgja honum eftir með C5 Aircross á næsta ári, en hann er nokkru stærri en C3 Aircross. Þessir bílar eiga að skapa Citroën rekstarfé til að skapa meðal annars stóran fólksbíl sem vonandi mun líta út sem líkastur tilraunabílnum CXPERIENCE. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær hann kemur á markað, en vonandi sem fyrst því þarna fer ægifallegur bíll.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Innlent