Meistararnir sópuðu Indiana í sumarfrí Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. apríl 2017 19:53 LeBron hefur verið með sópinn á lofti undanfarin ár. Vísir/getty
Cleveland Cavaliers kláraði einvígi sitt gegn Indiana Pacers nú rétt í þessu með 106-102 sigri í Indiana en þetta er fimmta árið í röð sem lið LeBron James sópar liðinu sem þeir mæta í átta-liða úrslitum Austurdeildarinnar í sumarfrí. Indiana kom af krafti inn í síðasta leik liðanna og leiddi með 26 stigum í hálfleik en samt tókst LeBron að draga lið sitt inn í leikinn á nýjan leik og kreista fram sigur. Fyrir heimamenn var því möguleikinn til staðar að vera sópað í sumarfrí í fyrsta sinn í sögu félagsins. Sami kraftur var í Pacers-mönnum í upphafi leiksins sem leiddu allan fyrri hálfleikinn en gestirnir frá Cleveland tóku yfir leikinn og sneru honum sér í hag eftir því sem leið á annan leikhluta og leiddu 58-52 í hálfleik. Munurinn fór upp í þrettán stig í byrjun fjórða leikhluta en Pacers-menn náðu að komast aftur inn í leikinn og ná forskoti á nýjan leik stuttu fyrir leikslok en þá settu gestirnir aftur í gírinn og sigldu sigrinum heim. LeBron James var eisn og oft áður stigahæstur í liði Cleveland með 33 stig ásamt því að taka tíu fráköst en í liði Indiana var Myles Turner stigahæstur með 20 stig. Stórstjarna Indiana, Paul George, náði sér ekki á strik í leiknum en hann hefur verið orðaður frá félaginu og gæti þetta hafa verið síðasti leikur hans í Pacers-treyjunni.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira