Golden State slapp með skrekkinn gegn Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. nóvember 2017 07:30 Curry og Lonzo Ball í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Meistararnir í Golden State Warriors þurftu framlengingu til að leggja LA Lakers að velli í NBA-deildinni í nótt. Lokatölur voru 127-123. Stephen Curry hafði verið í basli með skotin sín utan þriggja stiga línunnar í leiknum en setti niður tvö slík í upphafi framlenginarinnar. Það gaf tóninn og Golden State fagnaði sigri. Curry hafði aðeins hitt úr einu af sjö þriggja stiga skotum sínum fram að því en hann skoraði alls þrettán af átján stigum liðsins síns í framlengingunni. Kevin Durant skoraði 29 stig fyrir Golden State en Curry var með 28 og Klay Thompson 20. Hjá Lakers var Brandon Ingram stigahæstur með 32 stig en liðið var nálægt því að tryggja sér sigur í lok fjórða leikhluta. Ingram fékk opið skot á lokasekúndunum en það geigaði. Houston vann Indiana, 118-98, og þar með sinn sjötta sigur í röð. James Harden átti stórleik en hann var með 29 stig, tíu stoðsendingar og átta fráköst. Houston vann alls tólf af þrettán leikjum sínum í nóvember. Orlando vann Oklahoma City, 121-108. Aaron Gordon skoraði 40 stig og tók fimmtán fráköst þar að auki fyrir Orlando sem hafði tapað níu leikjum í röð. Vandræði Oklahoma City halda áfram en þetta var fimmta tap liðsins í síðustu sex leikjum þess. Russell Westbrook skoraði 37 stig, þar af 20 í fjórða leikhluta.Úrslit næturinnar: Detroit - Phoenix 131-107 Orlando - Oklahoma City 121-108 Philadelphia - Washington 118-113 New York - Miami 115-86 Toronto - Charlotte 126-113 Houston - Indiana 118-97 New Orleans - Minnesota 102-120 Dallas - Brooklyn 104-109 San Antonio - Memphis 104-95 LA Lakers - Golden State 123-127
NBA Mest lesið Arnar Pétursson dæmdur úr leik á Íslandsmótinu og er mjög ósáttur Sport Diogo Jota lést í bílslysi Fótbolti Ásthildur Helga: Þetta var bara lélegt Fótbolti Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Körfubolti Sveindís og félagar sendar í frí á meðan HM karla fer fram Fótbolti Systurnar hugsi vegna virkni stelpnanna á TikTok Fótbolti Skýrsla Arons: Afleit byrjun sem verður nú að svara fyrir Fótbolti „Ég var bara með niðurgang“ Fótbolti Skórnir hennar seldust upp á mínútu Körfubolti Glódís Perla skipti um stuttbuxur í miðjum leik Fótbolti Fleiri fréttir Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Sjá meira