Steve Kerr og Steph Curry: Gregg Popovich yrði frábær forseti Bandaríkjanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. nóvember 2017 10:30 Steve Kerr og Gregg Popovich á góðri stundu. Vísir/Getty
Steve Kerr, þjálfari Golden State Warriors, talar afar vel um annan þjálfara í NBA-deildinni en þá erum við að sjálfsögðu að tala um læriföður hans Gregg Popovich. Kerr vann tvo af fimm NBA-titlum sínum sem leikmaður undir stjórn Gregg Popovich. Popovich hefur þjálfað lið San Antonio Spurs frá árinu 1996 og er búin að gera Spurs fimm sinnum að NBA-meisturum. Í viðtali við ESPN þá fór Kerr lengra en bara að hrósa körfuboltaþjálfaranum Gregg Popovich. „Ég myndi kjósa Pop. Hann yrði frábær forseti. Ég er að tala í fullri alvöru. Ég myndi kjósa hann,“ sagði Steve Kerr sem sjálfur hefur gert Golden State Warriors tvisvar sinnum að NBA-meisturum. Gregg Popovich er einn af þeim sem hefur farið mikinn í gagnrýni sína á núverandi Bandaríkjaforseta Donald Trump. „Heiðarleiki og heilindi. Það eru tvö lykilatriði fyrir hvaða persónu sem ætlar sér að verða forseti. Hann hefur þetta tvennt,“ sagði Kerr. Stephen Curry, leikmaður Golden State Warriors, tekur undir með þjálfara sínum.„Hann er frábær fyrir NBA-deildina og yrði jafnvel enn betri fyrir þjóðina,“ sagði Stephen Curry. Steve Kerr segir að Popovich sé einn af hans helstu lærimeisturum en hann spilaði fyrir Pop frá 1998 til 2001 og svo aftur frá 2002-2003 sem var hans síðasta tímabil á ferlinum. „Við höfum hér hjá Golden State tekið upp nokkra hluti frá Pop. Meira en allt annað þá met hann mikils af því að hann er frábær vinur og maður sem ég hef aðdáun á,“ sagði Kerr. Þeir Steve Kerr og Gregg Popovich mætast einmitt með lið sín í NBA-deildinni í nótt. Leikurinn fer fram í San Antonio.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira