Boston Celtics komst aftur á sigurbraut Dagur Lárusson skrifar 17. desember 2017 09:30 Jayson Tatum skoraði 19 stig. vísir/getty
Boston Celtics komst aftur á sigurbraut í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið bar sigurorð af Memphis Grizzlies. Alls fóru átta leikir fram í nótt en bæði Cleveland Cavaliers og San Antonio Spurs voru sömuleiðis í eldlínunni. Boston Celtics var búið að tapa þremur síðustu leikjum sínum þegar liðið mætti Memphis Grizzlies í gær og því var kominn tími á sigur. Boston byrjaði leikinn mun betur og var yfir 31-12 eftir 1. leikhluta og 48-40 að loknum fyrri hálfleik. Memphis náði hins vegar að minnka forystu Boston niður í 3 stig í þriðja leikhluta en eftir það tók Boston aftur völdin og vann að lokum sigur, 102-93. Stigahæstur í liði Boston var Kyrie Irving með 20 stig og næststigahæstur var Jayson Tatum með 19 stig en Marc Gasol var stigahæstur hjá Memphis með 30 stig. LaMarcus Aldridge var stighæstur í sigri San Antonio Spurs á Dallas Mavericks en hann var með 22 stig. Lebron James leiddi sína menn til sigurs gegn Utah Jazz en hann skoraði 29 stig, tók 11 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.Úrslit næturinnar: Hornets 91-93 Trail Blazers Cavaliers 109-100 Utah Jazz Knicks 111-96 Thunder Heat 90-85 Clippers Rockets 115-111 Bucks Timberwolves 106-108 Suns Spurs 98-96 Mavericks Grizzlies 93-102 CelticsHér fyrir neðan má sjá brot úr leik Boston Celtics og Dallas Mavericks
NBA Tengdar fréttir Boston Celtics töpuðu þriðja leiknum í röð Boston Celtics og Utah Jazz mættust í NBA körfuboltanum í nótt þar sem að Boston Celtics töpuðu sínum þriðja leik í röð. 16. desember 2017 09:15 Mest lesið Liverpool - Manchester City | Fyrsti leikurinn eftir dóm City Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Fleiri fréttir Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Líktu Álftanesi við Bayern München Hafði betur í spænska Íslendingaslagnum Óvænt truflun í Njarðvík „Náðum að auka tempóið í seinni hálfleik“ „Viðhorf leikmanna angrar mig“ Áfall fyrir Tindastól: „Ég er ekki læknir en þetta leit illa út“ Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur „Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“ Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Sjá meira
Boston Celtics töpuðu þriðja leiknum í röð Boston Celtics og Utah Jazz mættust í NBA körfuboltanum í nótt þar sem að Boston Celtics töpuðu sínum þriðja leik í röð. 16. desember 2017 09:15