Hugbúnaðarfyrirtækið Greenqloud selt á 5,3 milljarða króna Daníel Freyr Birkisson skrifar 30. nóvember 2017 13:54 Novator, fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, átti 13,4 prósent hlut í Greenqloud. vísir/gva
Fyrrverandi eigendur íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Greenqloud fengu samtals 51 milljón dala þegar bandaríska félagið NetApp festi kaup á því fyrr á árinu. Upphæðin nemur 5,3 milljörðum íslenskra króna en vefsíðan Northstack greinir frá. Omega Iceland, félag í eigu Novator, fjárfestingafélags Björgólfs Thors Björgólfssonar, átti í Greenqloud 13,4 prósent og fékk það 6,8 milljónir dala í sinn hlut. KP Holding, félag Birkis Kristinssonar, átti 11,6 prósent hlut og fékk 5,9 milljónir dala í sinn hlut. Meson Holding átti síðan 1,1 prósent en það er félag Vilhjálms Þorsteinssonar. Stærstu hluthafar Greenqloud voru hins vegar Kjölur fjárfestingarfélag með 38,8 prósent hlut, NSA Ventures með 15,8 prósent og Kelly Ireland með 7,5 prósent hlut. Vísir greindi frá kaupunum í ágúst en um var að ræða fyrstu kaup Fortune 500 fyrirtækis á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki. Markmið kaupanna er að styrkja leiðandi stöðu NetApp á markaði hybrid skýjaþjónustu.Sjá einnig:NetApp kaupir íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Greenqloud Greenqloud var stofnað árið 2010 af Eiríki Hrafnssyni og Tryggva Lárussyni og var fyrsta fyrirtæki í heimi til þess að bjóða upp á skýjaþjónustu sem eingöngu var rekin á endurnýjanlegri orku. Eftir að Jónsi Stefánsson, forstjóri Greenqloud, var ráðinn til fyrirtækisins í mars 2014 hefur megináhersla verið lögð á að þróa Qstack; sérhannaða hugbúnaðarlausn sem getur á auðveldan hátt stýrt skýjalausnum og tölvuþjónum fyrirtækja. NetApp, Inc. var stofnað 1992 en hefur verið skráð sem Fortune 500 fyrirtæki frá árinu 2012, sem gerir það að einu stærsta fyrirtæki Bandaríkjanna fimm ár í röð. Höfuðstöðvar þess eru í Sunnyvale, Kaliforníu, en fyrirtækið sérhæfir sig í geymslukerfum og utanumhaldi gagnavera ásamt því að vera leiðandi og í mikilli sókn þegar kemur að hybrid skýjaþjónustu.
Tengdar fréttir NetApp kaupir íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Greenqloud Bandaríska félagið NetApp Inc. hefur keypt Greenqloud ehf. en þetta eru fyrstu kaup Fortune 500 fyrirtækis á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki sem vitað er um. 17. ágúst 2017 09:46 Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira
NetApp kaupir íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Greenqloud Bandaríska félagið NetApp Inc. hefur keypt Greenqloud ehf. en þetta eru fyrstu kaup Fortune 500 fyrirtækis á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki sem vitað er um. 17. ágúst 2017 09:46