Eyþór Arnalds hagnast um 60 milljónir Hörður Ægisson skrifar 15. nóvember 2017 10:00 Eyþór Arnalds er meðal annars stærsti hluthafi útgáfufélags Morgunblaðsins. Vísir/Ernir
Eignarhaldsfélagið Ramses, sem er í eigu Eyþórs Arnalds fjárfestis, hagnaðist um rúmlega 60 milljónir króna í fyrra borið saman við hagnað upp á 492 milljónir á árinu 2015. Eyþór er meðal annars stærsti einstaki hluthafi Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, með tæplega 23 prósenta hlut en hann kom inn í hluthafahóp félagsins í apríl á þessu ári. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi Ramses er hagnaður félagsins að mestu tilkominn vegna tekna af hlutabréfum. Heildareignir í árslok 2016 námu tæplega 706 milljónum, en þar af voru lán til tengdra aðila um 280 milljónir. Eigið fé félagsins var liðlega 707 milljónir og lagði stjórn þess til að greiddur yrði arður til hluthafa að fjárhæð 50 milljónir. Á meðal fjárfestinga sem Eyþór hefur komið að á undanförnum árum er kísilver Thorsil í Helguvík og þá keypti hann ferðaþjónustufyrirtækið Special Tours í Reykjavík, sem gerir út báta til hvalaskoðunar í Faxaflóa, vorið 2016.Fréttin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Sjá meira