Tveir legsteinar bjóðast á ómerkta gröf Vigdísar Garðar Örn Úlfarsson skrifar 3. nóvember 2017 07:00 Vigdís Ingvadóttir hvílir í gröf númer 148 við innganginn að Skeiðflatarkirkju. Mynd/Guðmundur B. Guðbergsson „
Ég lýsi yfir mikilli ánægju og þakklæti til fólks sem tekur undir þetta með okkur,“ segir Jóna Sigríður Jónsdóttir, forystukona um uppsetningu legsteins á leiði flökkukonunnar Vigdísar Ingvadóttur í Mýrdal. Frétt Fréttablaðsins í gær um erfitt lífshlaup Vigdísar og söfnun Jónu og annarra kvenna úr Mýrdal fyrir legsteini á ómerkta gröf Vigdísar í Skeiðflatarkirkjugarði vakti mikla athygli. Tvö fyrirtæki höfðu í gær samband við Fréttablaðið og síðar Jónu til að bjóða fram legstein á leiði Viggu gömlu. Fjöldi fólks lýsti vilja sínum til að leggja söfnuninni lið. „Við hjónin vorum að tala um að það væri gaman að styrkja þetta verkefni, þetta er flott framtak,“ segir Birnir Vignisson, eigandi Steinsmiðju Akureyrar, sem vill gefa legstein svo söfnunarféð sjálft geti nýst í að koma steininum fyrir.Vigdís Ingvadóttir í túlkun Jónu Sigríðar Jónsdóttur.„Þetta fannst okkur það falleg og skemmtileg frétt að okkur langar að gefa þeim legstein fyrir Vigdísi, það væri gaman ef við gætum aðstoðað þær ef þær vildu,“ segir Bergur Steingrímsson hjá Graníthöllinni sem kveðst eiga von á Vigdísarhópnum í heimsókn í næstu viku. „Ég átti ekki von á neinu í þessa veru en er að verða nokkuð bjartsýn,“ segir Jóna. Hún hafði áður rætt málið við sóknarnefnd Skeiðflatarsóknar. „Hún tók vel í að aðstoða okkur við að setja steininn upp.“ Vigdís flúði tíu ára gömul undan harðræði á æskuheimili sínu og lagðist í flakk sem stóð meira og minna þar til hún lést 92 ára gömul 5. janúar 1957. Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hafði þegar ákveðið að styrkja söfnunina um 50 þúsund krónur og Jóna segir Hótel Dyrhólaey einnig áður hafa lofað myndarlegum fjárstuðningi.Jóna Sigríður Jónsdóttir.Skírnir Garðarsson, sem er starfandi sóknarprestur í Vík í Mýrdal í afleysingum fram á næsta sumar, segir Vigdísi vera sér einkar hugleikna af tveimur ástæðum. Hann hafi rætt við sóknarnefnd og heimamenn um að koma legsteini á leiði gömlu flökkukonunnar. „Hún var fórnarlamb eineltis sem barn og unglingur og einnig sem fullorðin og er í raun samnefnari þeirra mörgu sem slíkt hafa orðið að þola. Svo er hún afkomandi eldklerksins séra Jóns Steingrímssonar sem var langafi hennar og sem ber höfuð og herðar yfir allt mögulegt hér eystra; hann var bæði prestur, náttúrufræðingur og leiðtogi Skaftfellinga um margra ára skeið,“ segir Skírnir.Vigdís Ingvadóttir.Fyrir þá sem vilja heimsækja leiði Viggu gömlu má geta þess að Skeiðflatarkirkja er rétt norðan við þjóðveg eitt á móts við afleggjarann að Dyrhólaey. Sólveig Guðmundsdóttir sem býr á bænum Litla-Hvammi, rétt við kirkjuna, kynntist ásamt systkinum sínum Viggu gömlu þegar hún gisti stundum á æskuheimili Sólveigar á Eystri-Skógum undir Eyjafjöllum. Það sé ágætt að Vigdís fái sinn legstein. „Hún var náttúrlega sérstök. Hún fór á milli bæja og gisti, hún var ágæt,“ segir Sólveig um Viggu gömlu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Flökkukonan Vigdís fær legstein sextíu árum eftir andlátið Vigdís Ingvadóttir sem mætti harðræði föður síns og var höfð útundan í stórum systkinahópi í Mýrdal áður en hún lagðist í flakk aðeins tíu ára gömul fær loks legstein á leiði sitt sextíu árum eftir að hún dó í hárri elli. 2. nóvember 2017 07:00 Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Innlent Fleiri fréttir Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Sjá meira
Flökkukonan Vigdís fær legstein sextíu árum eftir andlátið Vigdís Ingvadóttir sem mætti harðræði föður síns og var höfð útundan í stórum systkinahópi í Mýrdal áður en hún lagðist í flakk aðeins tíu ára gömul fær loks legstein á leiði sitt sextíu árum eftir að hún dó í hárri elli. 2. nóvember 2017 07:00