Óvissa um rekstrarhæfi Kosts Kristinn Ingi Jónsson skrifar 8. nóvember 2017 09:00 Jón Gerald Sullenberger er stofnandi og framkvæmdastjóri Kosts en hlutafé verslunarinnar var aukið um 44,5 milljónir í fyrra. Vísir/Stefán
Töluverð óvissa er um rekstrarhæfi matvöruverslunarinnar Kosts að því er fram kemur í nýbirtum ársreikningi verslunarinnar. Skammtímaskuldir Kosts, sem rekur verslun við Dalveg í Kópavogi, námu 221 milljón króna í lok síðasta árs en á sama tíma voru skammtímakröfur einungis 163 milljónir. Í ársreikningnum er tekið fram að þessi óvissa geti hugsanlega haft þær afleiðingar að verslunin geti ekki selt eignir sínar og greitt skuldir við eðlileg rekstrarskilyrði. Stjórnendur Kosts, en Jón Gerald Sullenberger er stofnandi og framkvæmdastjóri verslunarinnar, hafi unnið að því að auka framlegð af vörusölu sem og að draga úr almennum rekstrarkostnaði. Hlutafé Kosts var aukið um 44,5 milljónir í fyrra og nam eigið fé verslunarinnar tæplega 87 milljónum í lok síðasta árs. Kostur tapaði 7,8 milljónum króna í fyrra borið saman við 20,5 milljóna króna tap árið 2015. Var vörusala verslunarinnar 1.148 milljónir króna í fyrra og dróst saman um 8,6 prósent á milli ára. Þá jukust rekstrargjöld um 3,5 prósent og námu um 269 milljónum króna í fyrra. Ekki náðist í Jón Gerald við vinnslu fréttarinnar. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið í sumar ljóst að allar verslanir hefðu fundið fyrir áhrifunum af komu Costco til landsins. Kostur væri þar engin undantekning. „Það er ekki við öðru að búast þegar markaðurinn hér á landi er ekki stærri en þetta,“ sagði hann.Fréttin birtisti fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira