Einn af þeim fáu er hin ellefu ára gamli Demarjay Smith sem fæddist í nóvember 2006 en foreldrar hans eru frá Jamaíka og Púertó Rikó.
Demarjay Smith eyddi þó aldrei neinum tíma á Jamaíka eða Púertó Ríkó heldur ólst hann upp í Bronx í New York.
Demarjay hefur fengið viðurnefnið „Jamaican Trainer" eða „líkamsræktarþjálfarinn frá Jamaíku“ því þrátt fyrir ungan aldur hefur hann verið í herferð fyrir því að fólk í hans hverfi komi sér í betra form.
Hann varð orðinn stjarna á samfélagsmiðlum aðeins átta ára gamall en Demarjay Smith varð frægur eftir að hann kom í heimsókn í þáttinni hennar Ellen DeGeneres.
Demarjay er mjög mikill karakter enda skemmtilegu og drífandi strákur sem á auðvelt með að fá fólk með sér.
Hann hefur náð upp góðu sambandi við NBA-stjörnuna LeBron James eins og sést vel í þessu myndbandi hér fyrir neðan.
LeBron James er líka ánægður með strákinn og setti myndbandið og Twitter-færslu Demarjay inn á sinn Twitter-reikning en James er með yfir 39 milljónir fylgjenda á Twitter.
Love that kid man!! Need to get you to a game this year too and continue our handshake @DemarjaySmithhttps://t.co/enzQO0cHU1
— LeBron James (@KingJames) October 25, 2017
Ef við þekkjum LeBron James rétt þá verður Demarjay Smith mættur á Cleveland Cavaliers leik áður en við vitum af því.
.@DemarjaySmith talks about his favorite player @KingJames and shows us their secret handshake. pic.twitter.com/2PzZZVVO6T
— Kids Foot Locker (@KidsFootLocker) October 25, 2017