Endar daginn á prjóni Sigríður Inga Sigurðardóttir skrifar 4. september 2017 10:00 Vilborg segir að það sé ekki aðeins gaman að prjóna heldur líka gefandi. MYND/VILHELM
Frá því að Vilborg Guðlaugsdóttir lærði að prjóna hefur hún verið óstöðvandi og prjónað hverja flíkina á fætur annarri. „Prjónaáhuginn hafði lengi blundað með mér en ég hafði ekki þor til að demba mér út í handavinnu af fullri alvöru. Ég var viss um að ég gæti ekki prjónað og það óx mér í augum að lesa og prjóna eftir uppskriftum. Ég hafði af og til hugsað um að fara í Hússtjórnunarskólann og þá aðallega út af handavinnunni. Vinkona mín ákvað að fara í skólann og úr varð að ég gerði það líka,“ segir Vilborg, sem æfði fótbolta í átta ár og spilaði með yngri landsliðunum fyrir hönd Íslands. „Ég æfði lengst af með Val og um nokkurt skeið með Þrótti en lagði fótboltaskóna á hilluna fyrir nokkrum árum.“Vilborg er alltaf með nokkur verkefni í einu á prjónunuml.MYND/VILHELMVilborg hafði áður lokið námi í hjúkrunarfræði og unnið við sitt fag um nokkurt skeið en fór í hlutastarf í eina önn svo hún gæti tekið námið við Hússtjórnarskólann föstum tökum. „Flestir fara í skólann strax að loknu stúdentsprófi og ég var því töluvert eldri en bekkjarsystkin mín, en ég lét það ekki stöðva mig. Ég lærði ekki aðeins handavinnu heldur margt mjög hagnýtt sem hefur komið sér vel í hversdagslífinu og við heimilishald. Ég lærði líka að vera óhrædd við að prófa mig áfram við að prjóna. Maður lærir mest á því að reka sig á, þurfa að prjóna áfram og rekja upp þegar villur verða,“ upplýsir Vilborg, sem er mjög ánægð með námið. Það myndaðist góður vinskapur á milli bekkjarsystkinanna og Vilborg kynntist einni af sínum nánustu vinkonum í skólanum. „Ég varð ekki vör við annað en að fólki fyndist gott hjá mér að taka þetta skref og sumar konur sem ég vinn með nefndu að þær hefðu áhuga á að fara í Hússtjórnarskólann.“Vilborg er dugleg að prjóna á son sinn, sem er á þriðja ári.Gaman og gefandiEn hvað finnst Vilborgu skemmtilegast við að prjóna? „Það er slakandi, mjög skemmtilegt, skapandi og gefandi. Mér finnst gaman að gefa öðrum það sem ég hef prjónað. Ég hef prjónað sængurgjafir og jólagjafir fyrir vini og vandamenn og finnst það persónuleg gjöf. Ég prjóna líka fyrir basar sem Kristniboðsfélag kvenna heldur ávallt í nóvember og ágóðinn rennur til góðs málefnis. Svo er líka nytsamlegt að geta prjónað vettlinga, sokka og hlý föt sem nýtast til dæmis á son minn á leikskólanum og sambýlismann minn sem er leiðsögumaður.“ Aðspurð segist Vilborg ekki vera komin á það stig að hanna sjálf flíkurnar sem hún prjónar. „Ég er aðeins farin að fikra mig áfram við að teikna upp mynstur og prjóna eftir þeim. Ég hef hannað og prjónað eina fullorðinspeysu og eina barnapeysu. Yfirleitt finn ég uppskriftir á netinu eða í blöðum og skoða prjónasíður á samfélagsmiðlum. Á Instagram fylgist ég til dæmis með hanneoorlien, petiteknit, mammastrikk, barnehagestrikk og knittingforlove. Vilborg fær hugmyndir í blöðum og á samfélagsmiðlum eins og SnapChat.rightSvo er ég með „Strikkere“ á SnapChat. Það eru stelpur í Noregi sem skiptast á að vera með snappið. Þær eru með mismunandi þema í hverri viku, svo sem byrjendaprjón, leikskólaprjón og vettlinga- eða húfuprjón. Þá sýna þær hvað þær eru að prjóna eða hafa prjónað og koma með ýmis góð ráð. Ég hef gaman af því að fylgjast með þessu og fæ hugmyndir og innblástur að verkefnum.“ Vilborg skellir upp úr þegar hún er spurð hvort hún hafi hugsað sér að sýna prjónaskap á SnapChat. „Ja, það er reyndar aldrei að vita nema ég helli mér út í það. Hver veit?“ Vilborg notar lausan tíma til að prjóna og er alltaf með nokkur verkefni í gangi í einu, enda lítur hún á prjónaskap sem skemmtun en ekki kvöð. „Ég prjóna yfir sjónvarpinu eða þegar ég hlusta á rólega tónlist eða hljóðbók. Mér finnst gott að enda daginn á því að prjóna,“ segir Vilborg að lokum.
Mest lesið „Ég hef aldrei reynt að verða nokkur skapaður hlutur“ Tónlist Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Lífið Lofar svakalegri veislu Tónlist Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Lífið „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Lífið Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Lífið Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Lífið Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Lífið Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti Tíska og hönnun Fleiri fréttir Segir hjálminum að þakka að hann sé á lífi Krakkatían: Níu líf, karfan og víkingar Hvers vegna tölum við um bongóblíðu? Tólf klukkustunda gjörningur í Hörpu í dag Torfbærinn í Vesturbænum sem stóð fram á níunda áratuginn Bubbi hrærður: Trúir því að Níu líf muni á endanum vakna að nýju Fréttatía vikunnar: Skúlptúrar, ráðherrarifrildi og EM Arnar Þór selur Arnarneshöllina Á 90 þúsund servíettur í Hafnarfirði Heiður Ósk og Davíð eru nýtt par Fékk skyndihugmynd og er nú í blómahafi heima fyrir Einstakur Fender Telecaster í Hljóðfærahúsinu Fólk ferðist alla leið frá Ástralíu til að sækja Víkingahátíðina Tignarleg miðbæjaríbúð Helgu Ólafs til sölu Íslensk lopapeysa flutt milli heimsálfa vegna mestu eftirsjár ævinnar Breytti hænsnahúsi í verkstæði sitt Teknóhátíð á Radar alla helgina Enn neisti hjá Bad Bunny og Kendall Jenner Banjóleikari frá Nashville með Baggalúti og Sinfó Hugsar hlýtt til áranna í Los Angeles Aníta Briem og Hafþór eiga von á barni Selur húsið í Garðabæ eftir kaupin á glæsihúsi Ingu Lindar Sjö daga afmælissæla í Reykjanesbæ Þrjú hundruð börn reyna að dorga furðulegasta fiskinn Bara 33 ára og lífið á eftir að koma í ljós Daði keypti hús Jóns Jónssonar með mömmu sinni á yfirverði „Ég væri ekkert án þeirra“ Gekk í tvo tíma að flugvellinum til að komast hjá leigubílagjaldi Friðrik Ómar setur Reykhúsið aftur á sölu og lækkar verðið Linda lætur sér Lindarbraut lynda Sjá meira