Skoðun

Skemmri skírn

Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar
Töluvert vantar upp á tillögur þær sem landbúnaðarráðherra birti í gær til að leysa vanda sauðfjárbænda. Tillögurnar eru ágætar svo langt sem þær ná. Þær eru hins vegar skemmri skírn og plástur á sár sem ekki grær. Stjórntæki vantar til að taka á birgðavandanum og engar skuldaaðgerðir eru í augsýn fyrir unga bændur. Lækkun á afurðum sem bændur eiga nú von á setur því allar áætlanir sauðfjárheimila í loft upp.

Umframmagn af kjöti er ennþá til staðar og sláturtíðin hafin. Heimili í sauðfjárrækt munu ekki fá tekjur fyrir útlögðum kostnaði sem fór í að kaupa aðföng. Allt stefnir í mikla kauplækkun á meðan laun annarra stétta í þjóðfélaginu hafa hækkað um 30-35%. Afkoman verður neikvæð EBITDA og á þá eftir að greiða vexti, verðbætur og afskriftir.

Hafa áhrifin verið greind? Hefur landbúnaðarráðuneytið upplýsingar um áhrif tillagnanna á tekjur fólks sem stundar sauðfjárbúskap, á unga bændur, á samfélög? Hver verður staða bænda eftir eitt ár? Hver verður staða heimila á svæðum brothættra byggða, þar sem nú eru rúmlega 200 heimili sem lifa af sauðfjárbúskap?

Afleiðingarnar geta orðið fjöldagjaldþrot hjá ungum bændum með börn sem um leið sjá fram á að missa heimili sín, þar sem þau eru veðsett. Offramboð á jörðum, afleidd störf í matvælaframleiðslu munu hverfa og byggðirnar tæmast.

Ríkisstjórnin verður að hlusta á lausnir til að leysa birgðarvandann.

Sandkassaleik ráðherra Viðreisnar með landbúnaðarráðherra í broddi fylkingar verður að stöðva. Forsætisráðherra sem hefur sagt að í gildi sé búvörusamningur, og það standi ekkert annað til en að stjórnvöld standi við þann samning, verður að stíga fram og tryggja stuðning ríkisstjórnarinnar sem allra fyrst.

Nágrannalöndin verja sína landbúnaðarframleiðslu. Evrópusambandið losar bændur við umframbirgðir, s.s. mjólkurduft, smjör og kjöt og setur í frysti eða selur út fyrir svæðið. Ríkisstjórnin getur ekki skorast undan ábyrgð nema ráðherra Viðreisnar ætli sér að leggja íslenska matvælaframleiðslu niður og þúsundir starfa.

 

Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.




Skoðun

Skoðun

Septem­ber án niður­stöðu

Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar

Skoðun

Taktík

Jens Garðar Helgason skrifar

Skoðun

„Er hún ekki bara á túr?”

Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar

Sjá meira


×