Saksóknari í París áfrýjar sýknudómi yfir Björgólfi Birgir Olgeirsson skrifar 5. september 2017 17:31 Björgólfur Guðmundsson. Vísir
Embætti saksóknara í París hefur áfrýjað sýknudómi yfir Björgólfi Guðmundssyni, fyrrverandi aðaleiganda Landsbankans, og Gunnari Thoroddsen, fyrrverandi yfirmanns bankans í Lúxemborg, ásamt sjö öðrum sem ákærðir voru vegna málsins. Greint var fyrst frá áfrýjuninni hér á landi á vef Ríkisútvarpsins. Eru þeir sakaðir um að hafa blekkt hundrað manns til að taka veðlán hjá Landsbankanum. Rannsóknin hófst eftir að fjöldi viðskiptavina Landsbankans í Lúxemborg leitaði réttar síns vegna lána sem tekin voru hjá bankanum fyrir hrun. Þeir sögðu farir sínar ekki sléttar af innheimtu lánanna eftir hrun. Hundruð fasteignaeiganda, þar á meðal söngvarinn frægi Enrico Macias, sökuðu Björgólf og félaga um að hafa svikið þá með flóknum viðskiptafléttum.Á vef Paperjam er greint frá því að þessi ákvörðun saksóknara, að áfrýja dómnum, veki nýja von í brjósti þeirra sem telja sig vera svikna í viðskiptum við bankann. Fengu viðskiptavinirnir lán út á fullt veð í eignum sínum á þeim forsendum að þeir fengju aðeins fjórðung af lánunum en restin færi í fjárfestingarsjóð. Hagnaðurinn af fjárfestingarsjóðnum átti síðan að greiða upp lánið.
Tengdar fréttir Björgólfur og félagar sýknaðir í París Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans, og Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi yfirmaður bankans í Lúxemborg, voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa blekkt yfir hundrað manns til að taka veðlán hjá bankanum. 28. ágúst 2017 13:24 Mest lesið Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Viðskipti innlent Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira
Björgólfur og félagar sýknaðir í París Björgólfur Guðmundsson, fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans, og Gunnar Thoroddsen, fyrrverandi yfirmaður bankans í Lúxemborg, voru í dag sýknaðir af ákæru um að hafa blekkt yfir hundrað manns til að taka veðlán hjá bankanum. 28. ágúst 2017 13:24