Lífið

Forsala fyrir Secret Solstice hafin: Svona var stemningin í ár

Stefán Árni Pálsson skrifar
Laugardalurinn lifnar heldur betur við á Secret Solstice.
Laugardalurinn lifnar heldur betur við á Secret Solstice.
Í hádeginu í dag hófst forsala miða fyrir Secret Solstice hátíðina sem fara mun fram dagana 21. til 24. júní 2018 Í Laugardalnum í Reykjavik. Vísir frumsýnir einnig sérstaka stuttmynd frá Secret Solstice sem fangar stemninguna sem var í Laugardalnum fyrr í sumar.

Hátíðin hefur stækkað ár frá ári frá því að hún fór fyrst fram árið 2014.  Hátíðin heppnaðist vel síðasta sumar, en þar komu fram heimsþekktir listamenn, þar á meðal voru bandaríska hljómsveitin Foo Fighters, The Prodigy, Rick Ross, Big Sean og  Richard Ashcroft ásamt um 100 öðrum innlendum og erlendum hljómsveitum, plötusnúðum og öðrum tónlistlistmönnum.

„Á fimm ára afmælinu verður öllu tjaldað til. Við tökum á móti nýjum hópi heimsþekktra listamanna til að halda uppi stuðinu í þessu langstærsta partýi ársins á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá forsvarsmönnum Secret Solstice.

Þegar salan hefst í hádeginu þann 6. September verður í boði mjög takmarkað magn miða á einungis 15.900 krónur, ef keypt er gisting á tjaldvæði með er verðið 22.900 krónur.  Þar gildir fyrstur kemur fyrstur fær og getur hver einstaklingur einungis keypt fjóra miða á þessu verði.  Þegar þeir miðar seljast upp hækkar verðið í 18.900 krónur, því næst 21.900 krónur þangað til allir forsölumiðar klárast og verðið fer í endanlegt verð sem er 24.900 krónur.

Verð á VIP miða er 39.900 krónur og er takmarkað magn miða í boði.Tilkynnt verður um fyrstu listamennina sem koma munu fram nú á næstu vikum.

Miðsalan fer fram á www.midi.is. Hér að neðan má sjá stuttmynd um hátíðina sem fram fór í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×