Frost í nótt en 20 stig í vikunni Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. ágúst 2017 09:27 Það frysti á Þingvöllum í nótt Vísir/Pjetur
Þó svo að það hafi fryst sums staðar lítillega í innsveitum í nótt þá geta Íslendingar gert ráð fyrir allt að 20 stiga hita í vikunni. Fram kemur á vef Veðurstofunnar að mest hafi frostið orðið 0.9 stig í Húsafelli og á Þingvöllum hafi hitinn farið niður í frostmark.Veðurstofan á ekki von á því að það frysti aftur næstu nótt - „norðanáttin er að mestu gengin niður og bíða okkar nú nokkrir tiltölulega hlýir og sólríkir dagar þar sem hægviðrið verður ríkjandi að mestu,“ segir veðurfræðingur. Ef allt gengur eftir gæti hámarkshiti þó náð 20 stigum í vikunni. Gert er ráð fyrir fremur hægri norðlægri átt eða hafgolfu en norðvestan 5 til 13 metrum á sekúndu úti við norðausturströndina fram yfir hádegi. Skýjað á köflum austantil á landinu og sums staðar rigning öðru hverju á norðausturhorninu. Víða verður léttskýjað annars staðar og hiti 8 til 18 stig að deginum, hlýjast sunnanlands. Þá er gert ráð fyrir 3 til 10 metrum á sekúndu á morgun og skýjað með köflum sunnan- og vestanlands, en bjartviðri í öðrum landshlutum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast norðanlands. Nánar á veðurvef Vísis.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:Austan kaldi með suðurströndinni á köflum, annars hægviðri. Bjart víðast hvar og hiti 8 til 18 stig, svalast austast.Á föstudag:Hægur vindur og bjart með köflum austantil á landinu, en þykknar upp við suðaustan golu eða kalda um landið vestanvert, og dálítil væta seinnipartinn. Hiti 7 til 15 stig.Á laugardag:Suðaustan 5-13 m/s og rigning, einkum sunnantil, en norðaustlægari átt norðvestanlands. Hiti breytist lítið.Á sunnudag:Ákveðin austanátt með rigningu sunnan- og austanlands, en norðlægari átt og úrkomulítið um landið vestanvert. Hiti 8 til 16 stig.
Veður Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Fleiri fréttir Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Ungir vinstrimenn takast á um ESB: „Enginn að ráðast á fjallkonuna á nokkurn hátt“ Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Sjá meira